
Niðurstöðurnar sýndu að einstaklingarnir sem borðuðu hádegismat fyrr léttust 30% meira en þeir sem borðuðu hádegismat seinna á daginn. Þau sem voru í seinni hópnum borðuðu yfirleitt orkuminni morgunmat og slepptu morgunmat oftar en þau sem borðuðu hádegismat fyrr. Seinni hópurinn mældist einnig með lægri insúlín næmni sem getur aukið líkur á sykursýki. Niðustöðurnar gefa því til kynna að tímasetning hádegismatar getur skipt máli og ef hann er borðaður í seinna lagi, þá getur það hægt á þyngdartapi þrátt fyrir magn orkuinntöku yfir daginn og skiptingu orkuefna.
Það hefði verið áhugavert að sjá líka mun á þeim sem borða hádegismat til dæmis kl. 13 eða 14 þar sem það eru örugglega ekki mjög margir í raunveruleikanum sem borða hádegismat kl. 15 eða seinna. En þessi rannsókn gefur samt til kynna að mjög líklega hefur þá áhrif á þyngdartap að borða staðgóðan morgunmat og hádegismat í kringum hádegið.Pistillinn er úr smiðju Hrundar Valgeirsdóttur næringarfræðings MSc, sem heldur úti bloggsíðunni naering.com
-Auglýsing-