40 geislafræðingar ætla að hætta störfum á Landspítalanum á miðnætti, samkvæmt samkvæmt upplýsingum Ásbjörns Jónssonar, sviðsstjóra myndgreiningarsviðs Landspítala. Í gær ákváðu einnig rúmlega hundrað skurð- og svæfingarhjúkrunarfræðingar að standa við uppsagnir sínar.
Stjórn spítalans sagði upp vaktakerfi geislafræðinga og hjúkrunarfræðinganna og átti uppsögnin að taka gildi á miðnætti. Starfsfólkið sagði þá upp störfum.
-Auglýsing-
Stjórnendur spítalans ákváðu á mánudag að fresta gildistöku vaktakerfisins til 1. október og fóru þess á leit við geislafræðinga og hjúkrunarfræðinga að fresta uppsögnum til 1. október. Þeir hafa nú hafnað því.
www.mbl.is 30.04.2008
-Auglýsing-