-Auglýsing-

Vilja útrýma biðlistum

Um tvöhundruð manns bíða eftir hjartaþræðingu. Biðtími getur verið allt að sjö mánuðir sé ekki um bráðatilfelli að ræða. Björn Zoega starfandi forstjóri Landspítalans vonast til að hægt verði að útrýma biðlistum með nýrri hjartaþræðingastofu sem tekur til starfa í nóvember.

Samningar um kaup á nýju hjartaþræðingatæki  voru undirritaðir í morgun.

Heildarkostnaður við nýju stofuna er eitthundrað og fjörutíu milljónir þar af leggur Landspítalinn til fjörutíu milljónir  í byggingakostnað.

Gjafa og styrktarsjóður Jónínu S. Gísladóttur gefur 75 milljónir en hann hefur átt stóran þátt í að efla hjartalækningar á spítalanum og studdi meðal annars kaup á öðru hjartaþræðingatæki árið 2001.

Samtökin Hjartaheill sem fagna 25 ára afmæli  um þessar mundir leggja fram tuttugu og fimm milljónir. Þá ætla samtökin að efna til landssöfnunar en takmarkið er að safna fimmtíu milljónum á afmælisárinu og rennur allt það fé sem safnast til hjartalækninga á Landspítala.

Sjá umfjöllun sjónvarps mbl hér

- Auglýsing-

 

www.mbl.is 21.07.2008

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-