-Auglýsing-

Sameining á bráðamóttökum Landspítala framfaraskref

Sameining á bráðamóttökum Landspítala á einn stað yrði mikið framfaraskref fyrir starfsemi sjúkrahússins, ef öll önnur bráðastarfsemi sjúkrahússins yrði jafnframt sameinuð á sama stað. Þetta kemur fram í ályktun stjórnar læknaráðs Landspítala. Af slíku fyrirkomulagi hlytist bæði faglegur og fjárhagslegur ávinningur, að mati stjórnarinnar.

„Læknar í mörgum sérgreinum hafa sett fram vel rökstuddar athugasemdir við lokun bráðamóttökunnar á Hringbraut. Slíkt gæti í ákveðnum tilvikum stofnað öryggi sjúklinga í hættu. Þar að auki er ekki ljóst hvort fyrirhuguð sameining á bráðamóttökunum leiði til raunverulegs rekstrarsparnaðar,” segir í ályktunni.

Sameiningu verði slegið á frest

Stjórnin segir að lögð hafi verið fram ný og ódýrari tillaga að nýbyggingu á lóð Landspítalans við Hringbraut. „Það er líklegt að slíka nýbyggingu megi reisa og taka í notkun á tiltölulega fáum árum. Þess vegna telur stjórn læknaráðs skynsamlegt að slá fyrirhugaðri sameiningu á bráðamóttökum spítalans á frest meðan kannað er hversu raunhæfar nýbyggingartillögurnar eru.”

www.visir.is 22.04.2009

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-