Mitt hjartalíf

Bjössi 2012Björn ÓfeigssonÞessi hluti síðurnnar er tileinkaður fólki eins og mér og öllum öðrum sem áhuga hafa á því að fræðast eða lesa sér til. Efnið sem er hér inni sést á stikunni hér til hliðar og þar er að finna “mitt hjartalíf” sem eru pistlar sem ég hef skrifað um sögu mína og það sem brunnið hefur á mér þau rúmlega átta ár sem þessi síða hefur verið í loftinu. Annað efni eru upplýsingar sem ég og Mjöll höfum safnað saman og gert aðgengilegt fyrir þig lesandi góður.

Allt efni sem ég skrifa hér set ég fram eins og ég skil það en tek fram að ég er ekki læknir eða vísindamaður, heldur bara ofur venjulegur Björn. Ég er sjúklingurinn en ég var þrjátíu og sjö ára gamall þegar ég fékk hjartaáfall. Vegna mistaka við greiningu mína og meðferð við innlögn á spítala varð útkoman heldur verri en efni stóðu til og hef ég síðan glímt við afleiðingar þess að hafa veikst og að hafa verið vitlaust greindur með þeim afleiðingum að dráttur varð á réttri meðferð.

Leið mín til lífsgæða var löng. Við tóku þónokkur ár í leit að jafnvægi og viðeigandi meðferð en staðan nú er sú að ég er góður í hvíld og kann mér vel við stofuborðið með góða gesti í mat en hef ekkert í nokkurt það sem krefst aukinna afkasta hjartans. Líkami minn fær ekki blóð og vöðvar því ekki súrefni þegar á reynir og því fer krafturinn og aflið í hugann, hugmyndir, heimasíðuna okkar og margt margt fleira.

Við hjónin höfum þá köllun að deila með fólki reynslu okkar af því að lifa með hjartasjúkdóm og því hvernig við höfum leitast við að skapa okkur lífsgæði þrátt fyrir ýmsa heilsufarslega annmarka. Það er bjargföst trú okkar að upplýsingar séu leiðin að góðri aðlögun og því mikilvægar öllum þeim sem ganga svipaða leið og við.

Það er von mín að hér á síðunni fáir þú notið stuðnings sem ert hjartveikur, fáir skilning sem ert aðstandandi hjartasjúklings og þekkingu sem ert fræðimaður. Það er von mín að sagan okkar geri gagn.