-Auglýsing-

Lyfjamarkaðurinn mun opnast

„Við værum búin að redda þessu ef við værum bara ein að berjast í þessu en við þurfum að kljást við lítið batterí í Brussel,” sagði Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra um opnun lyfjamarkaðarins innan evrópska efnahagssvæðisins.

Guðlaugur Þór segir að innan EES hafi menn tekið mark á gagnrýni hans hvað varðar hömlur á lyfjamarkaði innan svæðisins sem kemur sér ákaflega illa fyrir lítil markaðssvæði á borð við Ísland. Skýrði ráðherrann frá því að í Brussel sé ferlið til að breyta regluverkinu hafið.

Heilbrigðisráðherra segist vera búinn að koma á tilraunaverkefni um sameiginlegan lyfjamarkað á Norðurlöndum og er þegar hafið samstarf við Svía sem er farið að skila umtalsverðum fjölda lyfja inn á íslenskan lyfjamarkað.

„Markmiðið er að koma á samnorrænum markaði,” sagði ráðherra á hádegisverðarfundi í Valhöll í Reykjavík fyrir skömmu.

www.mbl.is 17.09.2008

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-