-Auglýsing-

Hringur fyrir hjartað

Málefni hjartans taka á sig ýmsar og misrómantískar myndir. Önundur Jónasson, nýútskrifaður véltæknifræðingur, fékk dönsk verkfræðiverðlaun fyrir sitt hjartans mál, hönnun svokallaðs mitralhrings sem er settur í kringum hjartalokur til að styrkja hjartavefinn.

Verkefnið var lokaverkefni Önundar og dansks samnemanda, Jespers Lønne, í véltæknifræði frá Verkfræðiskóla Árósa í samvinnu við Skejby-sjúkrahúsið sem er eitt af stærstu sjúkrahúsum Evrópu.

„Þegar fólk fær blóðtappa deyr oft hluti af hjartavöðvanum og þarfnast lagfæringar. Áður fólst lækningin í að græða svínslokur í hjartað, síðar var svínunum þyrmt og járnlokur notaðar í staðinn. Nýrri tækni er að nota hring til að styrkja hjartavefinn. Þeir hafa ekki reynst nógu vel vegna þess að efnið í þeim, nitinol, hefur viljað brotna. Verkefnið fólst í að vinna þessa hringi í annað efni, polypropylen, sem er plastefni. Við létum framleiða fyrir okkur tvær prufutegundir af hringjum sem lofa góðu.“ Raunar lofar verkefnið það góðu að Önundur og Jesper hlutu hæstu einkunn frá skólanum og verðlaun Verkfræðiþjónustu Danmerkur – DIS – sem er vel þekkt innan verkfræðinnar.

Nokkra furðu vekur að véltæknifræðingur velji sér verkefni sem er nær læknisfræði heldur en véltæknifræði. „Margir hafa undrast þetta en líkaminn er eins konar líkamsvél,“ segir Önundur.

www.mbl.is 09.07.2009

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-