-Auglýsing-

Fisk í matinn – Famloka

Aldeilis frábærlega skemmtileg útgáfa af gömlu góðu samlokunni. Famloka er stútfull af hollustu þar sem þorskur er í aðalhlutverki.

HRÁEFNI

Uppskrift fyrir tvo

250 g þorskur
2 msk. tómatsalsa
100 g rifinn mozzarella
2 msk. olía
Salt
2 sneiðar hvítt brauð
50 g smjör
1 hvítlauksgeiri
Salatblöð
Tómatar
Pikklaður laukur
Hvítlauksmajónes
Avókadó
Gúrka
Hráskinka
Franskar kartöflur

AÐFERÐ

Fiskur
  • Veltið upp úr olíu og saltið eftir smekk.
  • Bætið tómatsalsa og rifnum osti yfir fiskinn.
  • Bakið á 180°C í 12-15 mín.
Samloka
  • Hitið pönnu með smjöri og rífið hvítlauk út á.
  • Steikið brauðið á báðum hliðum.
  • Útbúið samloku með fiski, hvítlauksmajónesi og öðrum hráefnum. 

Berið fram með frönskum kartöflum.

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-