-Auglýsing-

Er alþekkt glaðlyndi Íslendinga lýsinu að þakka?

Heilsusamleg áhrif sjávarfangs eru vel þekkt og hafa þau aðallega verið þökkuð ómega-3 fjölómettuðum fitusýrum. Líkaminn getur ekki framleitt þessar fitusýrur sjálfur og þarf að fá þær úr fæðunni, aðallega með neyslu lýsis og fiskmetis.

Rannsóknir hafa sýnt að lýsi hefur góð áhrif í vörnum gegn hjarta- og æðasjúkdómum, blóðflögumyndun og háu kólesteroli. Einnig hafa niðurstöður rannsókna bent til þess að lýsi hafi jákvæð áhrif gegn sóriasis, liðagigt, alzheimer, asma og svo mætti lengi telja.

-Auglýsing-

Nýjustu rannsóknir sýna okkur síðan á óyggjandi hátt að regluleg inntaka lýsis geti aukið einbeitingu barna og komið í veg fyrir ofvirkni og síðast en ekki síst unnið gegn þunglyndi. Þar er kannski að finna skýringu á glaðlyndi Íslendinga sem flestallir hafa neytt lýsis í ríkulegum mæli í gegnum tíðina.

Morgunblaðið 04.09.2008

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-