-Auglýsing-

Bee Gees hollir hjartanu

Bandarískir læknar hafa fundið út að diskólagið Stayin’ alive er gott fyrir hjartað. Taktur lagsins er einmitt sá sami og fylgja skal þegar hjartahnoð er framkvæmt. Mælt er með því að gefa hjartahnoð á hraðanum 100 hnoð á mínútu og Stayin’ alive hefur 103 slög á mínútu.

Hjartahnoð getur bjargað mannslífum en margir eru óöruggir við að beita því þar sem þeir eru óvissir um hversu hratt það skuli framkvæmt. Rannsóknir hafa nefnilega sýnt að yfirleitt er hnoðað of hægt til þess að það skili árangri.

Í rannsókn á vegum Dr. David Matlock við læknaháskólann í Illinois reyndist Stayin’ Alive skila prýðisárangri við að halda réttum hraða. Jafnvel dygði að raula lagið með sjálfum sér við hnoðið til að halda taktinum.

www.mbl.is 18.10.2008

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-