Hollenskir vísindamenn við háskólasjúkrahúsið Medical Center Groningen hafa uppgötvað nýja aðferð til að lengja lífslíkur þeirra sem fengið hafa hjartaáfall.
Felst hún í því að fjarlægja blóðkökkinn sem stíflar æðina til hjartans í stað þess að ýta honum til hliðar. Dánartíðni þeirra sem fengið hafa hjartaáfall er ekki há, en þessi uppgötvun gæti hins vegar nýst sem áfangi í bættum lækningaaðferðum.
-Auglýsing-
Við rannsóknina var notast við gögn um 1.071 sjúkling sem lagðist inn á árunum 2005 til 2006.
Fréttablaðið 19.02.2008
-Auglýsing-