-Auglýsing-

8 fáránleg ósannindi um kjötneyslu

KjötÖðru hvoru skjóta upp kollinum fréttir um að kjötneysla sé ekki af hinu góða. Kristján Már Gunnarsson sem hélt úti vefsíðunni authoritynutrition.com hefur rannsakað málið og liggur ekki á skoðunum sínum frekar en fyrri daginn þar sem hann afhjúpar nokkur ósannindi um kjöt, en gefum Kristjáni orðið. 

Það er mikið um vitleysu um næringu í fjölmiðlum.

Eitt versta dæmið er áróðurinn gegn kjötneyslu.

Hér eru 8 fáránleg ósannindi um kjöt og áhrif þess á heilsu.

1. Kjöt rotnar í ristli

Sumir halda því fram að kjöt meltist ekki almennilega og “rotni” í ristlinum.

Þetta er algjört rugl, líklega fundið upp af grænmetisætum til þess að hræða fólk frá því að borða kjöt.

- Auglýsing-

Það sem gerist þegar við borðum kjöt er að það brotnar niður bæði af völdum magasýra og meltingarensíma.

Í smágirninu eru próteinin brotin niður í amínósýrur og fitan er brotin niður í fitusýrur.

Eftir það frásogast þau yfir meltingarvegginn og inn í blóðrásina. Það er ekkert eftir til að “rotna” í ristlinum.

Ef þú vilt vita hvað raunverulega “rotnar” í ristlinum, þá eru það ómeltanleg plöntuefni (trefjar) … úr grænmeti, ávöxtum, korni og belgjurtum.

Meltingarfæri manna hafa ekki nauðsynleg ensím til að brjóta niður trefjar, sem er ástæða þess að þær fara alla leið niður í ristilinn.

Þar gerjast þær (rotna) vegna vingjarnlegu bakteríanna í þörmunum sem breyta þeim í næringarefni og gagnleg efnasambönd á borð við stuttu fitusýruna butyrate (1).

Þetta er það sem heldur vingjarnlegu bakteríunum lifandi og margar rannsóknir sýna að fóðrun þessara baktería sé mjög mikilvæg heilsu (23).

Þannig að … kjöt rotnar ekki í ristlinum. Plöntur gera það …. og það er góður hlutur.

Niðurstaða: Næringarefni í kjöti brotna niður og frásogast löngu áður en þau komast í ristilinn. Hins vegar gerjast plöntutrefjar (“rotna”) í ristli, sem er reyndar gott þar sem þær fæða vingjarnlegu ristilbakteríurnar.

- Auglýsing -

2. Kjöt inniheldur mikið af skaðlegri, mettaðri fitu og kólesteróli

Ein helsta röksemdin gegn kjöti er sú að það hafi tilhneigingu til að vera hátt bæði í mettaðri fitu og kólesteróli.

Þetta er ekki áhyggjuefni þar sem nýjar rannsóknir sýna að hvoru tveggja eruskaðlaus.

Þrátt fyrir að flestir telji kólesteról vera eitthvað sem þarf að óttast, þá er það í raun mjög mikilvæg sameind í líkamanum.

Kólesteról er að finna í öllum frumuhimnum og er notað til að búa til hormón. Lifrin framleiðir mikið magn af því til að tryggja að okkur skorti það aldrei.

Þegar við fáum mikið af kólesteróli úr fæðu þá framleiðir lifrin bara minna í staðinn þannig að heildarmagn í líkamanum breytist lítið (45).

Það er staðreynd að hjá um 70% manna hefur kólesteról í mat óveruleg áhrif á kólesteról í blóði (6).

Hjá hinum 30% finnst væg hækkun á LDL kólesteróli, en HDL (sem er verndandi) hækkar líka (78).

Það sama gildir um mettaða fitu, hún hækkar líka HDL (“góða”) kólesterólið (910).

En jafnvel þegar mettuð fita og/eða kólesteról valda vægri hækkun á LDL þá er það ekki vandamál vegna þess að þau breyta LDL ögnunum úr litlum, þéttum LDL (mjög slæmt) í stórar LDL, sem eru verndandi (1112).

Rannsóknir sýna að fólk sem hefur að mestu stórar LDL agnir er í mun minni hættu á hjartasjúkdómum (1314).

Þess vegna kemur ekki á óvart að sjá að rannsóknir á hundruðum þúsunda manna sýna að að mettuð fita og kólesteról tengjast ekki aukinni hættu á hjartasjúkdómum (1516).

Í raun sýna nokkrar rannsóknir að mettuð fita tengist minni hættu á heilablóðfalli, sem er önnur mjög algeng orsök dauða og örorku (17).

Þegar þessar kenningar eru prófaðar með raunverulegum rannsóknum á mönnum kemur í ljós að þegar fólk sker niður neyslu á mettaðri fitu og neytir “hjartavænna”jurtaolía í staðinn (sem lækka kólesteról) þá aukast líkur á dauða (18).

Niðurstaða: Það er rétt að kjöt hefur tilhneigingu til að vera hátt í mettaðri fitu og kólesteróli, en þetta er ekki áhyggjuefni vegna þess að þessi efni hafa ekki skaðleg áhrif á kólesteról í blóði og valda ekki aukinni hættu á hjartasjúkdómum.

3. Kjöt veldur hjartasjúkdómum og sykursýki 2

Það er ótrúlegt en satt að kjöti er oft kennt um vestræna sjúkdóma, til dæmis hjartasjúkdóma og sykursýki 2.

Hjartasjúkdómar urðu ekki vandamál fyrr en snemma á 20. öld og sykursýki 2 nokkrum áratugum síðar.

Þessir sjúkdómar eru nýir … en kjöt er ævaforn fæða. Menn og forverar þeirra hafa borðað kjöt í milljónir ára (19).

Að kenna gömlum mat um ný vandamál er fáránlegt.

Sem betur fer höfum við tvær mjög stórar og ítarlegar rannsóknir sem geta fullvissað okkur um hvað rétt er.

Í stórri rannsókn sem birt var árið 2010 höfðu vísindamenn sameinað upplýsingar úr 20 rannsóknum sem tóku til alls 1.218.380 einstaklinga. Þeir fundu engin tengslmilli neyslu óunnins rauðs kjöts og hjartasjúkdóma eða sykursýki 2 (20).

Önnur stór evrópsk rannsókn sem 448.568 einstaklingar tóku þátt í fann engin tengsl milli óunnins rauðs kjöts og þessara sjúkdóma (21).

Hins vegar fundu báðar þessar rannsóknir aukna áhættu fyrir fólk sem át unnarkjötvörur.

Af þessum sökum er mjög mikilvægt að gera greinarmun á milli mismunandi kjötgerða.

Margar rannsóknir sem virðast sýna að “rautt kjöt” sé skaðlegt gera ekki nægilegan greinarmun á milli unnins og óunnins kjöts.

Unnin matvæli eru almennt nokkuð slæm fyrir okkur … það á ekki eingöngu við kjöt.

Niðurstaða: Margar stórar rannsóknir hafa kannað tengsl milli kjötneyslu, hjartasjúkdóma og sykursýki. Það fundust sterk tengsl fyrir unnar kjötvörur, en engin tengsl fyrir óunnið rautt kjöt.

4. Rautt kjöt veldur krabbameini

Algengt er að fólk trúi því að kjöt, sérstaklega rautt kjöt, valdi krabbameini.

Hér verða hlutirnir svolítið flóknari.

Það er rétt að unnið kjöt tengist aukinni hættu á krabbameini, sérstaklega krabbameini í ristli (22).

En þegar kemur að óunnu rauðu kjöti þá eru hlutirnir ekki jafn skýrir.

Þó nokkrar rannsóknir bendi til þess að óunnið rautt kjöt geti aukið hættu á krabbameini, þá sýna yfirlitsrannsóknir sem sækja gögn í margar aðrar rannsóknir aðra niðurstöðu.

Tvær yfirlitsrannsóknir, ein sem fór yfir gögn úr 35 rannsóknum og hin úr 25 rannsóknum, komust að því að áhrifin af óunnu rauðu kjöti voru mjög veik fyrir karla og engin fyrir konur (2324).

Hins vegar … kemur í ljós að eldunaraðferð kjötsins hefur mikið að segja um áhrif þess á heilsu.

Nokkrar rannsóknir sýna að þegar kjöt er ofeldað þá geta myndast efnasambönd eins og Heterocyclic Amines og Polycyclic Aromatic Hydrocarbons, sem hafa reynst valda krabbameini í tilraunadýrum (25).

Það eru nokkrar leiðir til að koma í veg fyrir að þetta gerist … eins og að velja mildari eldunaraðferðir og skera burt brennda bita.

Svo svarið er ekki að forðast rautt kjöt, heldur tryggja að það brenni ekki.

Hafðu í huga að ofhitun getur valdið því að skaðleg efnasambönd myndast í mörgum öðrum matvælum. Þetta á ekki eingöngu við um kjöt (26).

Niðurstaða: Tengingin milli óunnins rauðs kjöts og krabbameins er mjög veik hjá körlum og engin hjá konum. Tengingin getur farið eftir því hvernig kjötið er eldað, því ofhitun getur verið krabbameinsvaldandi.

5. Menn eru náttúrulegar grænmetisætur og eru ekki “hannaðir” fyrir kjötneyslu

Sumar grænmetisætur halda því fram að menn séu ekki “hannaðir” til að borða kjöt.

Þeir segja að menn séu náttúrulegar grænmetisætur eins og prímatar, forverar okkar.

Þetta … er hins vegar alrangt. Menn og forverar þeirra hafa borðað kjöt í mjög langan tíma og líkamar okkar eru vel aðlagaðir að kjötneyslu (2728).

Meltingarkerfi okkar líkjast yfir höfuð ekki meltingarkerfum grasbíta.

Við höfum stuttan ristil, langt mjógirni og mikið af saltsýru í maga til að hjálpa okkur að brjóta niður dýraprótein (29).

Lengd mismunandi hluta meltingarfæra okkar er einhvers staðar á milli lengdar sem er dæmigerð fyrir bæði kjötætur og grasbíta, sem gefur til kynna að menn séu “hannaðir” fyrir hvoru tveggja (30).

Það er einnig talið að neysla okkar á dýraafurðum hafi ýtt undir þróun heilans sem hefur síðan aðskilið okkur frá öllum öðrum dýrum plánetunnar (31).

Það er best fyrir menn að borða bæði dýr og plöntur. Punktur.

Niðurstaða: Menn eru vel búnir til að nýta þau næringarefni sem finnast í kjöti. Meltingarfæri okkar endurspegla erfðafræðilega aðlögun að hvoru tveggja jurta- og dýraafurðum, þar sem dýraafurðir eru helsta uppspretta hitaeininga.

6. Kjöt er slæmt fyrir beinin

Margir virðast trúa því að prótein sé slæmt fyrir beinin og geti leitt til beinþynningar.

Kenningin er svona … við borðum prótein sem eykur sýruálagið á líkamann, við það færir líkaminn kalk úr beinunum og inn í blóðrásina til að draga úr sýrunni.

Það eru reyndar nokkrar skammtíma rannsóknir sem styðja þetta. Aukið prótein getur leitt til aukins kalsíumtaps úr líkamanum (32).

Hins vegar virðast þessi skammtímaáhrif deyja út vegna þess að langtíma rannsóknir sýna að prótein hefur í raun góð áhrif á beinaheilsu (33).

Það eru yfirgnæfandi vísbendingar um að próteinrík fæða sé tengd við bættan beinþéttleika og minni hættu á beinþynningu og beinbrotum vegna elli (343536).

Þetta er frábært dæmi um hvað blind trú á hefðbundna speki í næringu getur leitt tilandstæðrar niðurstöðu við það sem rétt er.

Niðurstaða: Þrátt fyrir að prótein valdi auknu kalsíumtapi til skamms tíma, sýna langtíma rannsóknir að há próteininntaka tengist auknum þéttleika beina og minni hættu á beinþynningu og beinbrotum.

7. Kjöt er óþarft

Því er oft haldið fram að kjöt sé óþarft fyrir heilsuna.

Þetta er reyndar að einhverju leyti rétt … flest næringarefni í því er að finna í öðrum matvælum úr jurtaríkinu.

En þó við getum lifað án þess, þýðir það ekki að við ættum að gera það … gæðakjöt inniheldur mörg næringarefni sem eru okkur góð.

Þar með talin eru gæðaprótein, vítamín B12, kreatín, carnosine og ýmis mikilvæg fituleysanleg vítamín, sem grænmetisætur vantar oft.

Náttúrulegur matur eins og kjöt inniheldur miklu meira en bara þessi hefðbundnu vítamín og steinefni sem við þekkjum öll. Það eru bókstaflega þúsundir snefilefna þarna … og sum hver eiga vísindin enn eftir að bera kennsl á.

Staðreyndin er sú að menn þróuðust við kjötneyslu og þróun hannaði líkama okkar með þessi næringarefni í huga. Þau eru ómissandi hluti af gífurlega flóknu líffræðilegu gangverki okkar.

Getum við lifað án kjöts? Vissulega … en við munum ekki ná hámarks heilsu, með nýtingu á öllum þeim gagnlegu næringarefnum sem náttúran hefur veitt okkur.

Þó við getum lifað án kjöts, þá mætti það sama segja um flestar aðrar gerðir matar … þar á meðal grænmeti, ávexti, jurtir, fisk, egg, o.s.frv. Við borðum bara meira af einhverju öðru í staðinn.

Gæðakjöt er nokkuð nálægt því að vera fullkomin fæða fyrir menn. Það inniheldur flest næringarefni sem við þörfnumst.

Það er meira að segja til ein rannsókn þar sem tveir gaurar átu ekkert nema kjöt og innmat í eitt ár og voru við frábæru heilsu (37).

Auðvitað er ekki allt kjöt eins. Besta kjötið kemur af dýrum sem eru alin á grasi og hafa borða þau matvæli sem eru þeim náttúruleg.

Óunnið kjöt af skepnum sem hafa verið aldar við góðar aðstæður (eins og nautakjöt af grasbítum) er næringarríkara (3839).

Niðurstaða: Sumir halda því fram að kjöt sé óþarft. Þó það sé rétt að við getum lifað án þess, þá eru samt mörg næringarefni í því sem eru mikilvæg fyrir heilsuna.

8. Kjöt gerir þig feitan

Kjöt er oft talið vera fitandi.

Þetta virðist skynsamleg ályktun því flestar kjötafurðir eru nokkuð fitu- og hitaeiningaríkar.

Hins vegar er kjöt einnig ein besta uppspretta hágæða próteins sem við höfum. Prótein er langbesta næringarefnið þegar kemur að þyngdartapi.

Rannsóknir sýna að próteinríkt fæði getur bætt efnaskipti um allt að 80 til 100 hitaeiningar á dag (4041).

Það eru líka til rannsóknir sem sýna að ef þú eykur próteineyslu, þá byrjar þú sjálfkrafa að borða minna af öðrum matvælum í staðinn (42).

Þó nokkrar rannsóknir hafa sýnt fram á að með því að auka próteinmagn í fæðu, þá skeri fólk sjálfkrafa niður hitaeininganeyslu um nokkur hundruð hitaeiningar á dag (43).

Meira prótein hefur líka tilhneigingu til að auka vöðvamassa. Vöðvar brenna hitaeiningum allan sólarhringinn (44).

Að auki skulum við ekki gleyma því að lágkolvetna- og Paleo mataræði, sem hafa tilhneigingu til að vera há í kjöti, leiða til verulega meira þyngdartaps en mataræði sem inniheldur minna af kjöti (4546).

Ef eitthvað er þá má segja að því meira sem þú borðar af hágæða kjöti (og minna af öðrum matvælum í staðinn), því auðveldara ætti að vera fyrir þig að léttast.

9. Nokkuð fleira?

Eru einhverjar aðrar mýtur um kjöt sem þú hefur heyrt talað um?

Bættu endilega við listann fyrir neðan!

Þessi grein birtist upphaflega á AuthorityNutrition.com.

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Kristján Már Gunnarsson
Kristján Már Gunnarsson
Former CEO of Authority Nutrition. Now writing about stocks and investing at StockAnalysis.com

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-