-Auglýsing-

Læknar stýri Landspítalanum

Það er óæskilegt að nýr stjórnandi Landspítalans verði framlenging á embættismannakerfinu og óskandi væri að læknir fái að stjórna spítalanum í framtíðinni. Þetta var meðal þess sem kom fram á opnum fundi læknaráðs Landspítalans í gær.

Nokkurs titrings gætti á fundinum vegna þess að einungis var rætt um mikilvægi þess að læknar hefðu áhrif á spítalanum. Ekki hafi verið minnst á aðra sérfræðinga svo sem hjúkrunarfræðinga.

-Auglýsing-

Þorbjörn Jónsson, formaður læknaráðs Landspítalans, segir fundinn hafa verið haldinn vegna þeirra breytinga sem gerðar hafi verið eftir að Sjálfstæðisflokkurinn tók við ráðuneyti heilbrigðismála.

- Auglýsing-

Þórólfur Þórlindsson, prófessor og forstjóri Lýðheilsustöðvar, tók til máls á fundinum og sagði að starfsfólk ætti auðveldara með að treysta stjórnanda sem hefði reynslu af starfi á spítalanum. Hann sagði óæskilegt að æðsti stjórnandi Landspítalans yrði framlenging á embættismannakerfinu sem undirmaður heilbrigðisráðherra.

Björn Zoëga, bæklunarlæknir og settur forstjóri Landspítalans, telur mikilvægt að læknar fái völd á spítalanum.

www.ruv.is 20.04.2008

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.
-Auglýsing-

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-