-Auglýsing-

Hjartamiðstöð Landspítala

Hjartamiðstöð Landspítala tekur til starfa þann 13. apríl 2010.  Hjartamiðstöðin verður opin alla virka daga frá kl. 08:00 á mánudagsmorgni til kl. 20:00 á föstudagskvöldum. 

Verkefni hjartamiðstöðvar Landspítala verður að sinna öllum bráðakomum til hjartalækna og einnig dag- og göngudeildarstarfsemi sem tengist hjartasjúkdómum.  Starfsemin  verður á 10D og 10W og flyst þangað í áföngum. 

Störf yfirlæknis og hjúkrunardeildarstjóra hjartamiðstöðvar verða auglýst í haust þegar meiri festa er komin á starfsemina.  Í millitíðinni hefur verið ákveðið að setja þau Kristínu Sigurðardóttur deildarstjóra á 14G og Davíð O. Arnar yfirlækni á bráðamóttöku 10D sem stjórnendur á hjartamiðstöðinni til haustsins.
Einnig hefur verið ákveðið að vinna að sameiningu legudeilda fyrir hjartasjúklinga og verða gerðar ráðstafanir til að opna á milli legudeildanna 14E og 14G og í framhaldi verða þær sameinaðar í eina legudeild.  Unnur Sigtryggsdóttir deildarstjóri á 14E mun stýra deildunum/deildinni  þar til staða deildarstjóra á sameinaðri legudeild verður auglýst.  

www.landspitali.is 01.03.2010

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-