-Auglýsing-

Danir stefna að einni milljón líffæragjafa

Fjöldi líffæragjafa í DanmörkuDanir stefna að því að ná einni milljón líffæragjafa eða gera u.þ.b. einn sjötta hluta þjóðarinnar að líffæragjöfum á þessu ári.

Það er heilmikið átak í gangi hjá frændum vorum í Danmörku en þar hafa heilbrigðisyfirvöld tekið höndum saman við frjáls félagasamtök í mikilli herferð til fjölgunar líffæragjöfum.

Danirnir stefna að því að vera með eina milljón líffæragjafa á þessu ári.

Á myndinni hér til hliðar má sjá mynd yfir fjölda líffæragjafa og ljóst að Danir hafa ekki setið auðum höndum á undanförnum árum.

Frændur vorir hafa farið í stórátak í þrígang til að fjölga líffæragjöfum, 2002 var átakið „lífið er gjöf“ sem skilaði gríðarlega góðum árangri, 2008 var átakið „taktu afstöðu“ og nú 2013 eru þeir með mikla herferð á Fésbókinni.

Fyrstu sex mánuði Þessa árs hafa hafa 154 manneskjur fengið nýtt tækifæri í lífinu í Danmörku.

- Auglýsing-
  • 9 hafa fengið nýtt hjarta
  • 18 hafa fengið eitt eða tvö ný lungu
  • 22 hafa fengið nýja lifur
  • 105 hafa fengið nýtt nýra.

Þetta er frábær árangur og reynslan af þessum aðgerðum mjög góð.

Þrátt fyrir þetta eru rúmlega 500 manns á biðlista eftir nýju líffæri.

Ef sama hlutfall ætti að nást hér á Íslandi þyrftu að vera um 50.000 líffæragjafar hér á landi. Ég er ekki með töluna á hreinu en er efins um að svo sé. Þannig að við þurfum að setja kraft í þessa umræðu hér á landi því það er mikilvægt að taka afstöðu til líffæragjafa og mikilvægt að okkar nánustu séu meðvitaðir um okkar vilja.

Tengt efni:  Kjeld fékk nýtt hjarta á Spáni 

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-