-Auglýsing-

D-vítamín mikilvægara en talið var

Nýjar rannsóknir sýna að D-vítamín er miklu mikilvægara fyrir líkamann en áður var talið. Vitað var að D-vítamín er nauðsynlegt líkamanum, verndi gegn krabbameini og beinþynningu. En nú hefur komið í ljós að D-vítamín gegnir lykilhlutverki í ónæmiskerfi líkamans.  Frá þessu er greint á vef danska dagblaðsins Berlingske Tidende.

„Vísindamenn hafa lengi vitað að D-vítamín gegndi mikilvægu hlutverki í baráttu líkamans við bakteríur. En það eru nýjar upplýsingar að D-vítamín sé afgerandi þegar kemur að því að virkja hinar svonefndum T-frumur líkamans, sem berjast gegn hættulegum sýkingum í líkamanum,“ segir Carsten Geisler, prófessor hjá Háskólanum í Kaupmannahöfn, sem stjórnaði nýju rannsókninni.

-Auglýsing-

Bendir hann á að rannsóknin muni koma að góðum notum þegar farið verði að þróa ný bóluefni gegn sýkingum og flensum. Niðurstaðan þýðir að endurskrifa þarf kafla læknabóka um ónæmiskerfið.

- Auglýsing-

Ekki er langt síðan frá því var greint á vef danska dagblaðsins Politiken að nýjar rannsóknir hefðu sýnt fram á að fólk á besta aldri sem og eldra fólk sem tæki nægilega mikið af D-vítamíni gæti dregið úr hættunum á því að fá annars vegar hjartasjúkdóma og hins vegar sykursýki um 43%.

D-vítamín má finna í miklu magni í eggjum, feitum fiski á borð við makríl, sardínur, síld, lax og lúðu, í olíum, lýsi sem og feitum mjólkurvörum á borð við smjör, ost og mjólk.

Líkaminn getur einnig sjálfur framleitt D-vítamín þegar hann fær á sig sólarljós. Sökum þessa skortir margt eldra fólk á norðurhveli jarðar D-vítamín á veturna.

- Auglýsing -

D-vítamín er líkt og A-, E- og K-vítamín fituuppleysanlegt. Það þýðir að ekki er hægt að leysa vítamínið upp í vatni og því skilar það sér ekki út með þvagi fái líkaminn of mikið af D-vítamíni líkt og gerist þegar fólk fær of stóran skammt af C-vítamíni.

Þó D-vítamín er líkamanum nauðsynlegt þá er samtímis mikilvægt að gæta þess að taka ekki of mikið af D-vítamíni þar sem það safnast fyrir í líkamanum.

www.mbl.is 08.03.2010

http://mbl.is/mm/frettir/taekni/2010/03/08/d_vitamin_mikilvaegara_en_talid_var/

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.
-Auglýsing-

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-