-Auglýsing-

Ályktun stjórnar FÍH gegn áfengisfrumvarpi

Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga ályktaði eftirfarandi á fundi sínum þann 5. nóvember 2007:  Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) skorar á alþingismenn að standa vörð um forvarnarstefnu í áfengismálum og greiða atkvæði gegn frumvarpi til laga um breytingu ýmissa lagaákvæða sem varða sölu áfengis og tóbaks. Áfengisvandinn er vaxandi heilbrigðisvandamál hér á landi og kostnaður samfélagsins vegna hans fer vaxandi.  Í gögnum frá Lýðheilsustöð kemur fram að áætlaður heildarkostnaður þjóða af völdum áfengisneyslu sé á bilinu 1-3% af þjóðarframleiðslu.  

Áfengi hefur neikvæð áhrif á fjölda sjúkdóma, er oft orsakaþáttur í slysum og getur haft veruleg neikvæð samfélagsleg áhrif.   Áfengisneysla á meðgöngu hefur skaðleg áhrif á þroska barnsins og síðar á fullorðinsárum.  Rannsóknir hafa sýnt að samband er á milli aðgengis að áfengi og neyslu.  Aukið aðgengi að áfengi mun án efa leiða til aukinnar áfengisneyslu unglinga og annarra einstaklinga í áhættuhópum.   

Í Heilbrigðisáætlun til ársins 2010, sem samþykkt var samhljóða á Alþingi þann 20. maí 2001, eru áfengis-, vímuefna- og tóbaksvarnir settar fram sem fyrsta markmið.  Þar eru sett fram markmið um að minnka heildarneyslu áfengis hér á landi og ekki síður að vinna gegn neyslu ungs fólks.  Að mati stjórnar FÍH vinnur umrætt frumvarp gegn þessum markmiðum Heilbrigðisáætlunarinnar.

www.hjukrun.is

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-