Þremeningarnir sem keppa fyrir Íslands hönd á heimsleikum líffæraþega sem fram fara í Durban í Suður-Afríku í lok mánaðrins voru í viðtali við Ísland í dag fyrr í kvöld.
Það eru þau Kjartan Birginsson, Björn Magnússon og Laufey Rut Ármannsdóttir sem verða fulltrúar Íslands á mótinu.
Þremeningarnir leggja af stað á föstudagsmorguninn til Suður-Afríku þannig að það eru síðustu forvöð að leggja þeim lið.
Ég hvet ykkur til að kíkja á Fésbókarsíðu hópsins, læka á síðuna og sína þeim stuðning með þeim hætti og hvetja þau til dáða.
Markmið hópsins er að færa fréttir á síðunni þegar þær koma þannig að það er kærkomið tækifæri fyrir fólk að fylgast með.
Áfram Ísland !
Hér er tengillin á viðtalið í Íslandi í dag fyrr í kvöld
Hér er svo tengill inn á Fésbókarsíðu hópsins