-Auglýsing-

Lést úr hjartaáfalli eftir sigur í kappdrykkju

1209277 91491012Hinn 45 ára gamli Joaquín Alcaraz Gracia fór með sigur af hólmi í drykkjukeppni í borginni Murcia á Spáni síðastliðinn miðvikudag. Það var þó skammgóður vermir því Gracia fór alltof geyst í keppninni, fékk áfengiseitrun og lést af völdum hjartaslags skömmu síðar. Gracia er sagður hafa drukkið um sex lítra af bjór á tuttugu mínútum.

Samkvæmt frásögnum viðstaddra gat Gracia lyft verðlaunagrip sínum og fagnað sigrinum í skamma stund. Skömmu síðar fór hann hins vegar að kasta upp án afláts og töldu viðstaddir hann hafa orðið fyrir áfengiseitrun.

Drykkjukeppnin var liður í árlegri hátíð Murcia-borgar. Fráfall Garcia setur þó strik í reikninginn í hátíðarhöldunum að þessu sinni.

Þetta kemur fram á vefsíðu Huffington Post.

dv.is 20.07.2013

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-