Króatíski áhugamaðurinn Goran Tunjic lést eftir að hafa fengið hjartaáfall í miðjum leik Mladost FC og Hrvatski Sokola í neðri deild í Króatíu á dögunum. Dómari leiksins áttaði sig ekki alveg á aðstæðum í fyrstu og spjaldaði leikmanninn fyrir leikaraskap.
Dómarinn áttaði sig þó fljótt á alvarleika málsins og kallaði eftir hjálp. Það var brunað með Tunjic á næsta sjúkrahús þar sem hann var útskurðaur látinn. Goran Tunjic var 32 ára gamall varnarmaður hjá Mladost FC liðinu.
-Auglýsing-
„Læknarnir reyndu að hjálpa honum en það var ekkert sem þeir gátu gert. Hann lést samstundis,” sagði talsmaður félagsins.
www.visir.is 05.05.2010
-Auglýsing-