Lilian Thuram, hinn reyndi franski knattspyrnumaður sem fyrr í dag virtst vera að ganga til liðs við París SG frá Barcelona, er með öll framtíðarmál sín í bið eftir að í ljós kom í læknisskoðun hjá franska félaginu í dag að hann er með hjartagalla.
Thuram skýrði frá því á blaðamannafundi nú síðdegis að hjartagallinn sem fram kom væri sá sami og bróðir hans dó úr í körfuboltaleik fyrir nokkrum árum síðan.
Thuram mun gangast undir áframhaldandi rannsóknir og kvaðst reikna með því að fá skýr svör um heilsufar sitt innan mánaðar. Fyrst þá muni hann taka ákvörðun um framtíð sína í fótboltanum.
Lilian Thuram hefur leikið með Barcelona undanfarin tvö ár en hann lék áður með Mónakó, Parma og Juventus. Hann á að baki 142 landsleiki sem er met í frönsku knattspyrnunni.
www.mbl.is 27.06.2008