Ítölsk húsmóðir var rétt búin að drepa eiginmann sinn í ógáti, þegar hún ætlaði einungis að örva hann til ásta. Hún leysti upp tvær Viagra stinningartöflur í rauðvíninu, sem eiginmaðurinn neytti með kvöldmatnum. En í staðinn fyrir að honum risi hold sem aldrei fyrr, varð skammturinn honum ofviða og hann fékk hjartaáfall.
Læknum á nærliggjandi sjúkrahúsi tókst á bjarga lífi hans, og ráðleggja þeir konunni að reyna vægari kynhvata við eiginmanninn, eins og til dæmis hvítlauk og chillí.
Viagra – best að prófa eina töflu fyrst, áður en ráðist er í stærri skammta.
-Auglýsing-
Frétt af vísir.is
-Auglýsing-