-Auglýsing-

Um hættuna á að fá hjartaáfall í miðjum kynlífsleik…

KossarFólk leggur nú mis mikið á sig í kynlífsleikjum sínum og þeir standa líka mis lengi yfir. Margir hins vegar, og fleiri en segja það upphátt, óttast það þó að átökin geti leitt af sér hjartaáfall.

Þetta er ekki óalgengur ótti hjá þeim sem þegar hafa fengið hjartaáfall og enn algengari hjá mökum hjartasjúklinga sem treysta því ekki alveg að makinn sinn muni kunna sér hóf í gleðinni. En hversu mikið er til í því að kynlíf geti orðið kveikjan að hjartaáfalli? Það að detta niður dauður í miðjum leik en ein af þeim mýtum sem þeir félagarnir og hjartalæknarnir í Cleveland Clinic tóku fyrir í bók sinni „Heart 411“ en í henni ráðast þeir meðal annars gegn algengum mýtum um hjartað. Hér í þessum pistli kíkjum við á hvað þeir höfðu að segja um hættuna á því að fá hjartaáfall við það að stunda kynlíf.

„Það er ákaflega sjaldgæft, en það getur gerst að fólk fái hjartaáfall þegar það stundar kynlíf ” segir Dr. Nissen. „Það eru gögn sem benda til þess – og þetta huggar kannski einhverja makana – að kynlíf með maka þínum hækki ekki blóðþrýsting né auki hjartslátt það mikið að það falli undir ástand sem auki hættu á hjartaáfalli verulega“.

„Kynlíf hins vegar með einstaklingi sem þú ert ekki vanur að stunda kynlíf með, sérstaklega ef um framhjáhald er að ræða, virðist vera tengt aukinni hættu á hjartaáföllum. Og ég held að ástæðan sem flestir hafa gefið sér fyrir þessu sé að þá sé spennan meiri. Þá getur einnig fylgt ótti við það að upp um framhjáhaldið komist og fólk getur verið nagað af samviskubiti. Þetta allt gerir að hjartsláttur eykst og blóðþrýstingur hækkar og getur þá virkað sem kveikja að hjartaáfalli ”.

„Þetta er því enn ein ástæðan til þess að vera tryggur maka sínum. En að öðru, ekki halda að kynlíf geti talist með sem líkamsrækt fyrir hjartaheilsu þína. Fyrir flest okkar þá stendur gleðin það stutt yfir að hún mætir ekki þörfum okkar fyrir hreyfingu dagsins”.

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-