-Auglýsing-

Það er einn í hverri fjölskyldu

Karl Andersen hjartalæknir

Það er að minnsta kosti einn í hverri fjölskyldu. Margir eru á besta aldri. Urðu að hætta að vinna eða fara í léttari störf fyrr en þeir ætluðu sér. Þetta er stór hópur, um 25 þúsund manns. Um það bil jafn margir og búa á öllu norðausturlandi. Þeir eiga það sameignlegt að lifa með afleiðingum af hjarta- eða æðasjúkdómi sem þeir fengu fyrir aldur fram. Sjúkdómi sem er ólæknandi og þeir lifa með afleiðingum hans það sem eftir er.

Við þekkjum þennan sjúkdóm. Við höfum rannsakað hann í marga áratugi. Við vitum að hann kemur frekar fyrir hjá fólki sem reykir, er með háar blóðfitur í blóði, háþrýsting eða sykursýki. Hann hefur tilhneigingu til að koma meira fyrir í sumum fjölskyldum en öðrum. Við vitum líka að þeir þættir sem stuðla að hjarta- og æðasjúkdómum eru að miklu leyti í okkar eigin höndum að stjórna. Með heilbrigðum lífsstíl, reglubundinni hreyfingu og fjölbreyttu og hollu mataræði má sennilega koma í veg fyrir stærsta hluta þessara sjúkdóma.

Það hefur náðst verulegur árangur. Nýjum tilfellum kransæðastíflu hefur fækkað um 80% á síðustu þremur áratugum og dauðsföllum hefur fækkað ennþá meira. Þetta skýrist að mestu af því að reykingamönnum hefur fækkað, blóðþrýstingur hefur lækkað og kólesteról í blóði hefur lækkað hjá þjóðinni. Horfur þeirra sem fá hjartaáfall eru sömuleiðis mun betri í dag en þær voru fyrir tveimur til þremur áratugum. Sífellt fleiri lifa fram á efri ár með afleiðingum áfallanna. Það veldur ekki aðeins aukinni byrði langvinnra sjúkdóma á samfélagið heldur er um að ræða varanlega færniskerðingu og skert lífsgæði þessara einstaklinga sem hafa orðið fyrir hjarta- og æðasjúkdómum.

Hvað er til ráða? Hvernig getum við komið í veg fyrir að fólk á besta aldri veikist af hjarta- og æðasjúkdómum? Hjartavernd hefur útbúið áhættureikni sem metur líkurnar á því að ákveðinn einstaklingur fái kransæðasjúkdóm á næstu 10 árum. Þessi áhættureiknir finnur þá sem eru í mikilli áhættu og þá má beita forvarnaraðgerðum til að draga úr þeirri áhættu. Hins vegar er stór hópur fólks sem mælist í meðal- eða lítilli áhættu með þessu áhættumati og fær því enga sérstaka forvarnarmeðferð. Þó svo að áhætta hvers og eins í þessum hópi sé ekki há, þá eru þeir svo yfirgnæfandi margir að umtalsverður fjöldi þeirra sem fá kransæðastíflu er úr þeirra hópi.

Til að bregðast við þessu og greina æðakölkunarsjúkdóminn á frumstigi hefur Hjartavernd útbúið nýjan áhættureikni sem er betrumbætt útgáfa af hinum fyrri. Nýi áhættureiknirinn er næmari leið til að greina forstig æðasjúkdóms með því að beita í völdum tilvikum ómskoðun af hálsæðum. Það er ódýr rannsókn sem ekki kostar neina geislun og er óþægindalítil. Greinist æðakölkun í hálsæðum eru verulegar líkur fyrir því að sjúkdómurinn finnist einnig í kransæðum. Með því að beita einfaldri lyfjameðferð með hjartamagnýl og blóðfitulækkandi lyfjum má hefta framrás sjúkdómsins og draga úr líkum á áföllum í framtíðinni.

Hjartavernd er nú að hefja forvarnarátak í samvinnu við heilsugæslustöðvar um allt land. Fyrirhugað er að allir heilsugæslulæknar geti mælt og metið heilbrigða einstaklinga með þessum hætti þegar þeir leita til heilsugæslunnar. Í þeim tilvikum þegar æðakölkun greinist má beita fyrrnefndri lyfjameðferð sem bætir horfur einstaklingsins. Þessi nálgun hefur aldrei verið reynd áður í heiminum. Rannsóknir okkar í Hjartavernd benda þó til þess að það sé tímabært að stíga þetta skref til þess að sú þekking sem við höfum tekið þátt í að skapa um tilurð hjarta- og æðasjúkdóma verði hagnýtt í þágu þjóðarinnar.

- Auglýsing-

Til að fjármagna þetta átak efnir Hjartavernd til landssöfnunar 17. nóvember n.k. undir kjörorðinu “Heilbrigt hjarta á nýrri öld”. Verndari söfnunarinnar er forseti Íslands Dr. Guðni Th. Jóhannesson. Söfnunin er unnin í samvinnu við 365 miðla og með stuðningi fjölmargra einstaklinga og fyrirtækja á landinu. Við sem að þessu forvarnarátaki stöndum berum þá von í brjósti að með þessari aðferðarfræði megi viðhalda heilbrigði landsmanna og draga úr ótímabærum dauðsföllum og langvinnum veikindum af völdum sjúkdóma sem má í flestum tilvikum koma í veg fyrir.

Karl Andersen

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-