-Auglýsing-

Tengsl milli bólgu í þörmum og hjarta og æðasjúkdóma

Þarmar og innyfliNú hefur verið bent á tengsl á milli þarmabólgusjúkdóma og hjarta og æðasjúkdóma og því rétt fyrir þá sem þjást af þessum sjúkdómum að fara að huga að áhættuþáttum hjarta og æðasjúkdóma til að minnka líkur á áföllum í framtíðinni.

Fólk sem hefur bólgusjúkdóm í þörmum, svo sem eins og sáraristilbólgu og Crohns sjúkdóminn, kann að vera í meiri áhættu gagnvart heila og hjartaáfalli, samkvæmt því sem endurskoðun á rannsóknum bendir til. Vísindamenn á Mayo Clinic í Bandaríkjunum hafa komist að því að bólgur í þörmum auki hættu á hjarta og heilaáfalli um 10 til 25 prósent.

Niðurstöðurnar eru byggðar á gögnum frá 150.000 manns sem svona var ástatt fyrir og höfðu tekið þátt í níu rannsóknum, en niðurstöðurnar voru kynntar á ársfundi American College of Gastroenterology.

„Meltingarlæknar ættu að vera meðvitaðir um þetta samband og ættu að einbeita sér að því að ná betri stjórn á hefðbundnum áhættuþáttum, svo sem koma í veg fyrir reykingar, vera meðvitaðir og hafa eftirlit með háþrýstingi og sykursýki,“ segir vísindamaðurinn Siddharth Singh, M.B.B.S. í yfirlýsingu.

Þarmabólgu verður oftast fyrst vart á aldrinum 15 – 30 ára, þar sem eitt af hverjum tíu tilvikum koma í ljós fyrir 18 ára aldur, samkvæmt því sem fram kemur hjá, Centers for Disease Control and Prevention sem hefur að gera með sjúkdóma og forvarnir í Bandaríkjunum.

Þó gögn um tíðni séu ekki sterk vegna þátta eins og rangra greininga, tók stofnunin eftir því að svo virtist sjúkdómurinn hefði áhrif á 1,4 milljónir Bandaríkjamanna. Þetta er því stór hópur og vitað er að kostnaðurinn við sjúkdóminn er um 1,7 milljarðar bandaríkjadala.

- Auglýsing-

Þýtt og endursagt af Huffington Post.

Björn Ófeigs

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-