-Auglýsing-

Svefn hefur áhrif á samskipti og starfshæfni

Við áramót strengir fólk þess oft heit að hefja nýtt heilsusamlegt líf, sem felst oftar en ekki í því að hreyfa sig meira, borða minna og sinna fjölskyldu og vinum betur. Allt er þetta gott og gilt en kapp er best með forsjá. Hverjum manni er nauðsynlegt að fá næga hvíld og góðan svefn.

Svefninn endurnærir og gefur okkur kraft til að takast á við dagsins gleði og amstur og er nauðsynlegur þáttur heilbrigðra lífshátta. Hann hefur áhrif á það hvernig okkur líður, samskipti við annað fólk, starfshæfni og lífsgæðin almennt. Án svefns og hvíldar lifum við ekki af, hvað sem öllum sögum líður um fólk sem þarf ekki nema nokkurra klukkustunda hvíld á hverjum sólarhring.

Svefnleysi
Þrátt fyrir að við eyðum um það bil þriðjungi ævi okkar í svefn hugum við ekki að mikilvægi svefnisins fyrr en svefnleysi fer að hrjá okkur. Þegar svo er komið fer öll hugsunin að snúast um það á hvern hátt hægt sé að ná góðum svefni. Til eru góð ráð til að ráða bót á svefnleysi og hér eru nokkur sem rannsóknir benda til að gefi góðan svefn.

Vaknaðu á sama tíma á hverjun degi. Að öllu jöfnu er í lagi að sofa lengur þegar vinnan kallar ekki, en ef svefnleysi hrjáir fólk þarf að koma reglu á svefntímann.
Minnkaðu notkun á örvandi efnum eins og nikótíni, koffeini, áfengi og lyfjum (í samráði við lækni).
Það að hafa lítið fyrir stafni eða að leggja þig á daginn getur truflað bæði svefn og gæði hans. Stuttur lúr eða slökun í um 20 mínútur að degi til getur þó bætt líðan.
Hreyfðu þig reglulega þar sem það bætir bæði lengd og gæði svefns. Of mikil þjálfun fyrir svefn gæti þó hugsanlega haft neikvæð áhrif.
Notaðu rúmið fyrir það sem því er ætlað. Rúmið er að öllu jöfnu til að sofa í, hvílast og að eiga góðar stundir með sínum bólfélaga.
Át og drykkja eiga helst ekki að eiga sér stað rétt fyrir svefn. Hvort tveggja getur haft áhrif á meltinguna þannig að brjóstsviði eða salernisferðir trufli svefninn.
Búðu til svefnvænt umhverfi. Hiti, lýsing og hljóð geta haft áhrif á svefninn og mikilvægt er að þessir þættir séu í lagi.
Leitastu við að leita lausna á áhyggjum eða vandamálum áður en þú leggst til svefns. Það getur hjálpað að setja á blað þau viðfangsefni sem bíða, helst í lok vinnudags, allavega fyrir svefninn. Mikilvægt er að fara sáttur að sofa.
Fáðu aðstoð við að draga úr streitu. Oft finnur fólk sínar eigin leiðir til að draga úr streitu en stundum getur verið gott að leita til fagfólks sem hefur yfirsýn yfir fjölbreyttari leiðir.
Íhuga ætti meðferð hjá sérfræðingi. Sérfræðiráðgjöf getur aðstoðað fólk til að greina vandann og leita úrlausna við honum.

Svefninn er þó ekki allt, við þurfum að finna hvíld og sálarró. Reynum að staldra við í amstri dagsins og njóta samvista við vini og vandamenn. Þó er það síst ekki mikilvægt að horfa gagnrýnum augum á auglýsingar og annað áreiti sem hvetur okkur til að taka þátt í lífsgæðakapphlaupi sem ekki er víst að sé til góðs. Ekki einungis svefn heldur líka slökun fær okkur til að líða betur, hún gefur hvild, frið og endurnæringu.

Anna Björg Aradóttir yfirhjúkrunarfræðingur
Salbjörg Bjarnadóttirgeðhjúkrunarfræðingur

- Auglýsing-

Birtist í Mbl. 17. janúar 2007

-Auglýsing-
-Auglýsing-

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-