-Auglýsing-

Hversu gott er sund fyrir hjartað?

Það getur verið mjög aflappandi að fara í sund og það er góð leið til að þjálfa hjartað.

Spurningin er hversu gott er sund fyrir hjartað? Sund er ein sú fjölhæfasta hreyfing sem við getum stundað, sérstaklega fyrir fólk með hjarta- og æðasjúkdóma.

Vatnið styður við líkamann, sem dregur úr álagi á liðamót og vöðva, en um leið vinnur hjartað stöðugt við að dæla blóði til að halda okkur gangandi í vatninu. Þetta gerir sund að mildri en árangursríkri þolþjálfun.

-Auglýsing-

Áhrif á hjarta og æðakerfi

Rannsóknir hafa sýnt að reglulegt sund getur lækkað blóðþrýsting, bætt blóðflæði og aukið súrefnisupptöku líkamans. Hjartað vinnur á jöfnum hraða í vatninu, sem styrkir hjartavöðvann og stuðlar að betri hjartaheilsu. Þeir sem glíma við hjartabilun eða hafa gengist undir hjartaaðgerðir geta sérstaklega hagnast af sundi sem hluta af endurhæfingu, að sjálfsögðu í samráði við lækni.

- Auglýsing-

Hentar flestum

Eitt af því besta við sund er að það hentar flestum, óháð aldri eða líkamlegu formi. Hægt er að synda á mismunandi hraða, nota kút/flotspjald eða einfaldlega ganga í lauginni – allt getur það skilað jákvæðum áhrifum á hjartað.

Heitir pottar – slökun og blóðrás

Margir tengja sund við að ljúka ferðinni í heitum potti, og það getur líka haft áhrif á hjartað. Hitinn víkkar út æðarnar og getur bætt blóðrás, auk þess sem slökunin dregur úr streitu og spennu sem hefur jákvæð áhrif á hjarta- og æðakerfið. Fólk með hjartasjúkdóma þarf þó að fara varlega því mjög heitir pottar geta valdið svima eða óþægindum og því er skynsamlegt að prófa sig áfram og fylgjast með eigin líðan.

Að lokum

Sund er því frábær leið til að hreyfa sig á öruggan hátt, bæta þrek og styrkja hjartað án mikils álags. Og fyrir marga er heiti potturinn -kannski ekki sá heitasti- punkturinn yfir i-ið, sambland af slökun, vellíðan og hjartavænni umhyggju.

- Auglýsing -

Björn Ófeigs.


Heimildir

American Heart Association – Endurance Exercise (Aerobic)

Mayo Clinic – Aquatic exercise: Healthy, easy on the body

Cleveland Clinic – Swimming: Joint-Friendly and Good for the Heart

Harvard Health Publishing – Hot baths and saunas: Beneficial for your heart?

PubMed – Cardiovascular Responses to Immersion in a Hot Tub (Mayo Clinic Proc. 1993)

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.
-Auglýsing-

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-