-Auglýsing-

Sextán ára drengur fær hjarta Skarphéðins

Skarphéðinn Andri„Sex koma til með að lifa vegna gjafa Skarphéðins og þar á meðal 16 ára strákur sem fær hjartað hans,“ segir Steinunn Rósa Einarsdóttir.

Sonur Steinunnar, Skarphéðinn Andri Kristjánsson, lést á gjörgæslu Landspítalans í gær en hann lenti í bílslysi við Fornahvamm í Norðurárdal þann 12. janúar síðastliðinn. Hann var átján ára.

-Auglýsing-

Skarphéðinn hafði sjálfur rætt um það við foreldra sína að ef eitthvað kæmi fyrir myndu aðrir fá að njóta líffæranna.

„Þetta var hans ósk. Hann var alveg staðráðinn í því að vilja gefa líffærin úr sér,“ segir Steinunn. Og nú fá sex manns að njóta gjafa Skarphéðins. „Ég veit ekki hvað ég hefði gert ef hann hefði ekki verið búinn að ákveða þetta.“

Steinunn segir að um leið og fjölskyldan hafi vitað í hvað stefndi hafi hún látið lækna vita svo allt yrði tilbúið fyrir líffæraflutninginn.

„Tvær manneskjur fá lungun, tvær nýrun, lifrin fer til einnar og svo fer hjartað til sextán ára drengs,“ segir Steinunn. „Okkur þykir sérstaklega vænt um það.“

- Auglýsing-

Að sögn Steinunnar fær fjölskyldan ekki að öðru leyti að vita hverjir fái líffærin. Hún fái þó að vita aldur og kyn þeirra eftir nokkrar vikur.

Þegar Steinunn og fjölskylda voru á leið upp á sjúkrahús komu þrír bílar í forgangsakstri á móti þeim. Bílarnir voru á leið út á flugvöll þar sem tvær flugvélar biðu eftir gjöfum Skarphéðins. Þær fóru svo til Oslóar og Stokkhólms.

„Það mega bara fjórir tímar líða þar til hjartað er sett í á ný. Ef Reykjavíkurflugvöllur væri ekki þar sem hann er þá hefði verið mjög tæpt með hjartað. Það munaði aðeins hálftíma,“ segir Steinunn.

„Þessar gjafir lýsa Skarphéðni vel – að gefa það sem hann gat.“

Af visi.is

Mynd úr einkasafni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-