-Auglýsing-

Nýtt greiðsluþátttökukerfi

Actavistablets lowresNýtt greiðsluþátttökukerfi lyfja tekur gildi 4.maí næstkomandi. Um er að ræða miklar breytingar á niðurgreiðslukerfi lyfja en mest var horft til sambærilegs kerfis í Danmörku við þessar breytingar.

Í núverandi kerfi reiknast greiðsluþátttaka við hverja lyfjaávísun og greiðir sjúkratryggður tiltekið hlutfall verðs lyfsins fyrir hverja lyfjaávísun, en ekkert hámark er á heildarlyfjakostnaði sjúkratryggðra.

Í nýju kerfi eykst greiðsluþátttaka sjúkratrygginga í þrepum (sjá töflu að neðan) eftir því sem heildarkostnaður eða uppsafnaður lyfjakostnaður sjúkratryggðs eykst, á tólf mánaða tímabili.
Með þessu kerfi er þeim sem nota mest af lyfjum tryggð meiri greiðsluþátttaka sjúkratrygginga en þeim sem nota minna af lyfjum. Ekkert hámark er þó á heildarlyfjakostnaði sjúkratryggðra í nýju kerfi frekar en í núverandi kerfi. Þar sem niðurgreiðsla lyfja hefst ekki fyrr en í 2. þrepi má gera ráð fyrir að mörgum reynist erfitt að greiða upphafsgreiðsluna 24.075 kr. / 16.050 kr.

Eitt af meginmarkmiðum með þessum breytingum er að gera greiðsluþátttöku lyfja óháða sjúkdómum ásamt því að jafna lyfjakostnað á milli sjúkratryggðra og elli-/örorkulífeyrisþega. Til dæmis verða sykursýkis-
og krabbameinslyf ekki lengur að fullu greidd af sjúkratryggingum heldur falla þau inn í almenna greiðsluþátttöku eins og önnur lyf.

Nánari útskýringar á ýmsum breytingum í tengslum við nýja greiðsluþátttökukerfið ásamt reiknivél er að finna á græna
hnappinum hér fyrir ofan.

Heildarlyfjakostnaður á 12 mánaða tímabil
Greiðsluhlutfall SÍ Sjúkratryggður Elli/Örorku/Börn/Ungmenni
0,0% 0 – 24.075 kr 0 – 16.050 kr.
85,0% 24.075 kr. – 96.300 kr. 16.050 kr. – 64.200 kr.
92,5% frá 96.300 kr frá 64.200 kr

 

- Auglýsing-

Af vef lyfjavers. www.lyfjaver.is 21.03.2013

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-