-Auglýsing-

Hydroxycut keyrir kerfið upp

ÓVENJUMARGIR sem leitað hafa á hjartadeild Landspítala á undanförnum mánuðum með hjartsláttartruflanir notuðu fæðubótarefnið Hydroxycut. Að sögn yfirlæknis deildarinnar hefur þetta vakið athygli en ekki er vitað um orsakasamband. Matvæla- og næringarfræðingur segir efnið beinlínis hættulegt en umboðsaðili efnisins segir það rangt, ekkert í Hydroxycut geti valdi hjartakvillum.

Hydroxycut er eitt vinsælasta fitubrennsluefni í heiminum og sala þess hér á landi hefur verið stigvaxandi með hverju árinu. Á vefsvæði umboðsaðila efnisins segir að Hydroxycut auki hitastig líkamans og örvi þannig grunnbrennslu hans. Viðkomandi brenni þannig fitu allan daginn en ekki aðeins meðan á æfingum stendur.

„Við höfum fengið sjúklinga sem sagst hafa notað efnið. Við höfum því velt fyrir okkur hvort það skipti máli í sambandi við þeirra einkenni,“ segir Gestur Þorgeirsson, yfirlæknir á hjartalækningadeild LSH. Hann tekur fram að fjölgun tilvika geti einnig verið tilviljun. „En okkur finnst ástæða til að halda utan um þetta og höfum hugsað okkur að skoða þetta frekar.“

Guðrún Kristín Sigurgeirsdóttir, matvæla- og næringarfræðingur, segir efni í Hydroxycut sem hafi áhrif á hjartað. „Það sem þessi efni gera er að auka brennslu. En það er ekki hægt að brenna hraðar nema keyra kerfið upp. Viðkomandi eykur hjartslátt til að auka brennslu.“ Hún segir efnið beinlínis hættulegt.

Dagskammtur líkt og einn kaffibolli

Þessu er Svavar Jóhannsson, eigandi Fitness Sport, ósammála. Svavar er umboðsaðili Hydroxycut. „Það er ekkert í Hydroxycut sem getur valdið hjartakvillum nema kannski koffín, og í fjórum Hydroxycut töflum, sem er dagskammtur, er jafn mikið koffín og í einum kaffibolla,“ segir Svavar. Hann tekur þó fram að ef efnið er notað vitlaust geti það leitt til aukaverkana, líkt og ef drukkið er of mikið kaffi.

- Auglýsing-

Svavar segist ekki hafa heyrt kvartanir vegna efnisins „nema hjá fáeinum sem ekki drekka kaffi og þeim fannst þeir verða of örir. En það er eðlilegt því ef þú drekkur ekki kaffi ertu dálítið viðkvæmur fyrir koffíni.“

Í hnotskurn

» Hydroxycut er eitt vinsælasta fitubrennsluefni í heiminum í dag. Að sögn umboðsaðila er það með yfirburða markaðsstöðu, einnig hér á landi.
» Til skamms tíma innihélt Hydroxycut efedrín en því var hætt eftir að lagt var bann við efedríni í fæðubótarefni í Bandaríkjunum.
» Á vefsvæði umboðsaðila segir að Hydroxycut dragi út matarlyst ásamt því að koma í veg fyrir að líkaminn nái að breyta kolvetnum í fitu.

Eftir Andra Karl

andri@mbl.is

Morgunblaðið 16.01.2009 

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-