Í dag tókum við Bjartur, félagi minn á hjólastígum borgarinnar -léttan hring inn í Hafnarfjörð. Það var eins og sjórinn kallaði á okkur og sjávarloftið dásamlega ferskt og lífið verður léttara.
Það er eitthvað ólýsanlegt við að hjóla úti, finna gróður og sjávarilmin í loftinu og leyfa huganum að reika þegar hjólið rúllar um stígana. Þetta eru augnablikin sem næra ekki bara líkamann heldur líka sálina.
Að hjóla úti, finna andardráttinn verða dýpri, og hjartað slá taktfast við hvert snúning, minnir mig á hversu mikilvæg útivistin er fyrir lífsgæði okkar.
Stundum er einfaldasti gleðigjafinn sá sem við höfum alltaf haft fyrir framan okkur: náttúran, hreyfingin og frelsið sem fylgir hjólatúr á rafmagnshjóli.
Hjólað fyrir hjartað – og fyrir lífið sjálft.
Björn Ófeigs.