-Auglýsing-

Hjartavernd fær rannsóknastyrki

Hjartavernd hefur fengið 125 milljóna króna rannsóknastyrki frá Bandarísku  heilbrigðisstofnuninni (NIH) til rannsókna á sambandi æðakerfis og heila- og nýrnastarfsemi sem og til rannsókna á notkun beinamynda sem munu spá fyrir um líkur á beinbrotum. 
 
Rannsóknin á æðakerfinu er gerð í samvinnu við vísindamenn í Cambridge í Bandaríkjunum og samkvæmt upplýsingum Hjartaverndar er vonast til að hún geti varpað ljósi á þá þætti æðabreytinga og blóðflæðisstjórnunar á hrörnun og vefjabreytingum í heila og nýrum sem gjarnan sjást með auknum aldri og hugsanlega verður hægt að hafa áhrif á. 
 
„Hjartavernd hefur á síðustu árum skipað sér sess meðal fremstu rannsóknarstofnana í heiminum á sviði notkunar á myndgreiningu í faraldsfræði. 
 
Rannsóknin á þætti beingerðar sem greind verður með tölvusneiðmyndum er samvinnuverkefni vísindamanna Hjartaverndar og Berkeley háskóla í Bandaríkjunum.  Veruleg fjölgun aldraðra á komandi áratugum veldur því að beingisnun og beinbrot meðal aldraðra er ein af mest ógnandi heilbrigðisvandamálum heimsins. Aukinn skilningur á þeim þáttum sem ákvarða áhættu hvers einstaklings á því að brotna á mjöðm eða hrygg og þróun aðferða til að fyrirbyggja slík áföll er því afar mikilvæg. Þessi rannsókn er líkleg til þess að geta varpað enn frekar ljósi á áhættuþætti beinbrota og mun því geta hjálpað okkur í forvörnum gegn beinbrotum.
 
Þessir rannsóknastyrkir eru mikil viðurkenning á því mikla vísindastarfi sem Rannsóknarstöð Hjartaverndar framkvæmir með góðum og dyggum stuðningi þátttakanda,“ segir í fréttatilkynningu frá Hjartavernd.

www.mbl.is 10.01.2009

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-