-Auglýsing-

Hjartaþræðingar utan spítala til umfjöllunar hjá Landlækni

„Okkur hefur borist erindi frá Hjartamiðstöðinni þar sem þeir kynna áhuga sinn á þessari starfsemi,“ segir Kristján Oddsson yfirlæknir hjá Landlæknisembættinu um áform Hjartamiðstöðvar Íslands að bjóða upp á hjartaþræðingar eins og fram kom í 24 stundum í gær.
Gestur Þorgeirsson yfirlæknir á hjartadeild Landspítalans segir þau geta stytt biðlista eftir hjartaþræðingum. „Það er bara spurning um aðstöðu og peninga. Ekkert annað,“ segir hann.

Til faglegrar athugunar

Kristján segir að næsta skref embættisins sé að taka út þá starfsemi sem Hjartamiðstöðin lýsir í erindi sínu. „Þetta er spurning um það hverjir standa að þessu og hvort þeir hafa réttindi til þess. Svo verður húsnæði og tæki tekin út,“ segir Kristján og bætir við að mögulega gæti embættið sett sem skilyrði fyrir starfsleyfi að aðgangur að spítala í neyðartilvikum yrði tryggður með samningum. Kristján bendir á að það sé þó á endanum Heilbrigðisráðuneytið sem ákveði hvort rekstur af þessu tagi sé heimilaður. Gestur segir að hjartadeildin hafi ekkert komið að málinu.


Biðlistinn að styttast

Gestur segir að auknu fjármagni hafi verið veitt til þeirra á árinu og að biðlistinn eftir hjartaþræðingum hafi styst töluvert. „Svo eigum við von á nýjum tækjum þannig að ég hef góða von um að biðlistinn verði ásættanlegur þegar líður á árið, en það má ekkert slá af.“ segir hann.


Eðlilegt að skoða

Ásta Möller formaður heilbrigðisnefndar Alþingis segir að ef þetta verkefni er þess eðlis að það er í lagi að setja það út
fyrir spítalann og verði hagkvæmara þá sé eðlilegt að skoða það. „En að sjálfsögðu verður að fara fram útboð,“ segir hún. Ekki náðist í heilbrigðisráðherra við vinnslu fréttarinnar.

Eftir Elías Jón Guðjónsson

elias@24stundir.is

24 Stundir 09.07.2008

- Auglýsing-

 

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-