-Auglýsing-

Fjölskyldusaga hjarta og æðasjúkdóma og lífsstíll

Það er mikilvægt að vera meðvitaður um fjölskyldusögu sína.

Sökum algengis hjartasjúkdóma, leynast hjartasjúkdómar í fjölskyldusögu margra og því mikilvægt fyrir hvern og einn að vera meðvitaður um fjölskyldusögu sína með tilliti til þessara sjúkdóma.

Hluti þeirra sem veikjast telja fjölskyldusögu eiga stóran þátt í orsökum veikinda sinna og finnst þeir jafnvel ekki geta haft stjórn á örlögum sínum. Svo einfalt er málið ekki. Vissulega er ekkert hægt að gera við þeim genum sem við erfum, við breytum ekki meðfæddri viðkvæmni okkar fyrir að þróa með okkur vissa sjúkdóma, hvort sem það eru hjartasjúkdómar eða aðrir sjúkdómar.

Hjartasjúkdómar eru þekktir fyrir að vera algengari innan sumra fjölskyldna en annara og fjölskyldusaga er einn af þeim þáttum sem skoðaðir eru og eru taldir spá fyrir um hjartasjúkdóma.

En spurningin er: erum við hjálparlaus gagnvart örlögum okkar? Ef hjartasjúkdómar eru algengir í fjölskyldu okkar, erum við þá bara út á Guð og gaddinn sett á meðan við bíðum þess sem verða vill?
Í fyrsta lagi þá er það sérstaklega mikilvægt að vera meðvitaður um fjölskyldusögu sína. Það eru mímörg dæmi þess að fólk með fjölskyldusögu leiti til hjartasérfræðinga án nokkurra einkenna til að kanna sögu sína og komast þar að því að hafið er ferli þróunar á svipuðum sjúkdómi en með réttri lyfjagjöf sé hægt að koma í veg fyrir áframhaldandi þróun og stöðva ferlið áður en það gerir skaða. Í versta falli er þá mögulega hægt að fresta þróun sjúkdóms í einhvern tíma og í besta falli koma í veg fyrir ótímabær veikindi.

Vitneskja um fjölskyldusögu gagnast hins vegar ekki einungis sem læknisfræðilegt vopn þar sem hægt er að bregðast við með lyfjagjöf í tíma. Enn betra er ef hægt er að koma í veg fyrir lyfjagjöf með öllu og líka losna við að veikjast. Það mun ekki verða mögulegt í öllum tilfellum. En það mun vera staðreyndin með marga.

Ef þú hefur mikla sögu um hjartasjúkdóma í fjölskyldu þinni, lifðu þá öðruvísi en fjölskylda þín!

Skoðaðu söguna þín. Skoðaðu fólkið þitt. Hvað einkennir lífsstíl þeirra sem veiktust? Líkur eru á að þeir sem bera fjölskyldusögu hjartasjúkdómana séu af eldri kynslóð en þú ert af. Líkur eru á að á þeirra tíma hafi vitneskja um mikilvægi lífsstíls verið minni ásamt því að áherslur í mat, hreyfingu, reykingum og áfengi hafi verið á annan hátt en þær eru í dag. Líkur eru á að þú getir fundið eitthvað í þeirra lífsstíl sem betur hefði mátt fara miðað við þekkingu og venjur í dag.

- Auglýsing-

Við erum oft mjög mótuð af þeim lífsstíl sem við erum alin upp við. Við lærum að næra okkur eins og við vorum nærð, við erum mótuð af þeim normum sem giltu í fjölskyldu okkar. Ef þú veist að þú mögulega hefur meðfædda viðkvæmni fyrir hjartasjúkdómum þá stendur þú betur en þeir fjölskyldumeðlimir sem ekki bjuggu við þá þekkingu sem við búum við í dag. Við getum með mjög nákvæmum hætti fengið líkamlegt ástand okkar metið og við getum fylgst mjög náið með heilsufarslegri þróun líkama okkar.

Aftur: ef þú hefur sögu um hjartasjúkdóma í fjölskyldu þinni, gerðu þá eitthvað öðruvísi en þeir gerðu sem veiktust. Reyktu þeir? Ekki reykja. Hreyfðu þeir sig? Hreyfðu þig meira eða markvissara. Drukku þeir áfengi? Drekktu minna eða skynsamlegra. Kláruðu þeir alltaf af disknum sínum og borðuðu reglulega bjúgu og soðnar kjötbollur í kálbögglum með bræddu smjöri? Borðaðu meðvitað og hollara.

Það getur vel verið að þrátt fyrir allt munir þú á einhverjum tímapunkti þjást af hjartasjúkdómi. En væri það ekki þess virði ef þú slyppir?

Mjöll Jónsdóttir sálfræðingur
mjoll@salfraedistofan.is

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Mjöll Jónsdóttir
Mjöll Jónsdóttirhttps://www.salfraedistofan.is/um-okkur/starfsfolk/mjoll-jonsdottir/
Mjöll lauk B.A. námi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2006 og Cand. Psych. prófi frá Háskólanum í Árósum árið 2012. Mjöll hefur sótt námskeið og fyrirlestra á sviði áfallameðferðar og heilsusálfræði ásamt því að sækja ráðstefnur um sitt sérsvið. Mjöll starfar hjá Sálfræðistofunni Höfðabakka 9

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-