-Auglýsing-

Hjólað fyrir hjartað – sumardagur á tveimur hjólum

Það er eitthvað sérstakt við að hjóla um borgina á fallegum sumardegi. Sólin vermir, vindurinn leikur um andlitið og borgin virðist allt í einu aðeins hægari og vingjarnlegri.

Fyrir mér eru þessar stundir meira en bara hreyfing, þær eru hluti af lífsgæðum sem ég met meira með hverju árinu sem líður.

-Auglýsing-

Þegar ég lagði af stað í hjólatúrinn í þessu myndskeiði fann ég enn og aftur fyrir þessari einstöku frelsistilfinningu sem hjólið gefur mér. Það skiptir í raun ekki miklu máli hvort ferðinni er heitið niður í miðbæ, meðfram strandlengjunni eða um róleg hverfi borgarinnar. Upplifunin er alltaf svolítið eins hugurinn róast, streitan víkur og maður verður hluti af umhverfinu í stað þess að þjóta í gegnum það.

Eitt af því sem hefur komið mér mest á óvart síðustu ár er hversu fallegir og vel skipulagðir hjóla- og göngustígar höfuðborgarsvæðisins eru orðnir. Það er hægt að hjóla langar leiðir um borgina án þess að finna mikið fyrir umferðinni. Stundum liggja leiðirnar meðfram sjónum, stundum um græn svæði eða kyrrlát hverfi þar sem maður sér borgina frá allt öðru sjónarhorni en þegar ekið er á milli staða. Ég held að margir geri sér ekki grein fyrir því hversu mikið af fallegum leiðum leynist rétt fyrir utan útidyrnar.

- Auglýsing-

Fyrir mig sem lifi með hjartabilun hefur hjólið mitt, hann Bjartur, orðið miklu meira en samgöngutæki eða áhugamál. Það hefur orðið félagi á ferðalagi sem hefur kennt mér að gleðjast yfir því sem ég get gert í stað þess að velta mér upp úr því sem ég get ekki.

Það eru vissulega dagar þar sem orkustigið er ekki upp á sitt besta og líkaminn minnir mig á að ég sé ekki sami maður og fyrir tuttugu árum. En einmitt þess vegna eru góðu dagarnir svo dýrmætir. Að geta lagt af stað, fundið hjartað vinna, séð fólk njóta dagsins og upplifað sumarið úr hnakknum á hjólinu er gjöf sem ég tek ekki sem sjálfsögðum hlut.

- Auglýsing -

Verkefnið Hjólað fyrir hjartað snýst því ekki bara um kílómetra eða æfingar. Það snýst um von, lífsgleði og að minna sjálfan mig og aðra á að jafnvel þegar lífið setur okkur skorður er enn hægt að finna leiðir til að njóta þess.

Og á degi sem þessum, með sólina yfir borginni, fuglasöng í eyrunum og Bjart undir mér, finnst mér ég vera nákvæmlega þar sem ég á að vera.

Björn Ófeigs.

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.
-Auglýsing-

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-