-Auglýsing-

Benecol í baráttunni við kólesteról

Benecol í baráttunni við kólesteról

Kynning. Benecol er náttúrulegur mjólkurdrykkur sem ætlaður er þeim sem vilja lækka kólesteról í blóði. Of hátt kólesteról í blóði er einn af helstu áhættuþáttum kransæðasjúkdóma og er því afar mikilvægt að halda kólesterólgildum innan eðlilegra marka. Mataræði er einn þeirra þátta sem hafa hvað mest áhrif á magn kólesteróls í blóði.

Benecol mjólkurdrykkur er seldur í kippum sem innihalda sex 65 ml flöskum og er ein flaska hæfilegur skammtur á dag. Allra nýjustu niðurstöður hafa sýnt fram á að mun betri árangur næst sé Benecols neytt með eða strax eftir máltíð en ef þess er neytt á fastandi maga. Því er mælt með að neyta Benecols í kringum einhverjar af máltíðum dagsins (t.d. morgunverð, hádegisverð eða kvöldverð).

Hvað er kólesteról?

Kólesteról er ein tegund blóðfitu og gegnir ýmsum mikilvægum hlutverkum í líkamanum. Það er framleitt í lifrinni en berst einnig með fæðunni í líkamann. En ef kólesterólmagn í blóði eykst umfram þörf getur það valdið æðakölkun og kransæðasjúkdómum. Algengi of hás kólesteróls eykst með aldri en engu að síður getur þetta vandamál getur herjað á fólk á öllum aldri og í öllum þyngdarflokkum og yfirleitt verður fólk engra einkenna vart. Því er mikilvægt að þeir sem komnir eru á fullorðinsár láti fylgjast með blóðfitunni hjá sér. Æskilegt að heildarkólesteról í blóði sé undir 5 mmól/l og allt yfir 6 mmól/l telst hátt kólesteról.

Hvað er Benecol?

Á undanförnum áratug eða svo hafa komið fjölmörg matvæli á markað víða erlendis undir vöruheitinu Benecol. Benecol er skrásett vörumerki fyrir vörur sem innihalda ákveðna gerð plöntustanólesters, en rannsóknir hafa sýnt að hann hefur áhrif til lækkunar kólesteróls í blóði. Þessi plöntustanólester var framan af einkum notaður í smjörlíki ýmiss konar en nú nýverið hafa einnig komið fram léttari afurðir með plöntustanólester, til að mynda jógúrtdrykkir á borð við þann sem MS hefur nú hafið framleiðslu á undir vörumerkinu Benecol.

Vísindarannsóknir staðfesta virkni Benecols

Fjölmargar vísindarannsóknir hafa verið gerðar á áhrifum plöntustanólesters á kólesteról í blóði. Niðurstöður eru einróma á þá leið að neysla plöntustanólesters lækkar blóðkólesteról, hvort sem um er að ræða klínískar rannsóknir á fólki eða dýratilraunir. Kemur lækkunin yfirleitt fram nokkrum vikum eftir að neysla hefst og er allt að 15% að meðaltali. Sýnt hefur verið fram á að plöntustanólester stuðlar að kólesteróllækkuninni með því að hindra upptöku á kólesteróli úr fæðu í þörmum. Lækkunin er einkum í heildarkólesteróli og hinu svokallaða „vonda kólesteróli“ (LDL), en engar breytingar verða í „góða kólesterólinu“ (HDL). Rannsóknir hafa einnig sýnt að mikilvægt er að neyta vörunnar reglulega til að árangurinn haldist og sé neyslu hætt, fer kólesterólgildi aftur í fyrra horf.

Mataræði og kólesteról

Eins og áður hefur komið fram er mataræði meðal þeirra þátta sem helst hafa áhrif á magn kólesteróls í blóði. Meðal þess sem ráðlagt er til að lækka kólesteról er að stilla fituneyslu í hóf, velja frekar mjúka fitu en harða og neyta grænmetis, ávaxta og grófs kornmetis í ríkum mæli.

- Auglýsing-

Benecol frá MS er sýrð undanrenna sem inniheldur 5% plöntustanólester, og hentar vel í baráttunni gegn kólesteróli sem hluti af fjölbreyttu mataræði. 

Pistillinn er unnin í samstarfi við MS.

Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu MS

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-