-Auglýsing-

Aukaslög – þegar hjartað truflar svefninn

Í mínu tilfelli gátu þessar hviður með hjartsláttaróþægindum staðið yfir í allt að þrjár klukkustundir.

Það er ákveðin kaldhæðni í því þegar maður leggst upp í rúm, tilbúinn að hvíla sig en hjartað ákveður að hefja sína eigin kvöldvakt. Það flöktir, tekur aukaslag og virðist stundum missa taktinn. Líkaminn vill hvíld en hjartað hefur greinilega ekki fengið minnisblaðið varðandi hvíldina.

Þetta varð tilefni þess að ég fór í Holter-mælingu, þar sem hjartslátturinn var skráður í tvo sólarhringa. Grunur var um að hugsanlega væri um gáttatif að ræða. Niðurstaðan sýndi hins vegar ekki gáttatif á mælingartímanum heldur um 19.000 supraventricular aukaslög og nokkrar stuttar runur. Þetta var ekki bara óþægilegt heldur truflaði svefnin verulega þar sem þetta stóð stundum í allt að þrjár klukkustundir.

-Auglýsing-

En það var gott að fá skýrari mynd af því sem var að gerast. En þótt niðurstaðan væri að sumu leyti róandi voru óþægindin og orkuleysið enn til staðar.

Hvað eru supraventricular aukaslög?

Heitið er dálítill tungubrjótur. Þetta eru ótímabær hjartaslög sem eiga upptök sín ofan við slegla hjartans oftast í gáttunum. Þau eru því gjarnan kölluð gáttaaukaslög.

Venjulega stjórnar sínushnúturinn takti hjartans. Við aukaslag kemur annað rafboð fyrr en það ætti að gera og truflar reglulegan takt. Maður getur fundið fyrir flökti, höggi í brjóstinu eða því að hjartað virðist sleppa slagi. Næsta venjulega slag getur síðan fundist sérstaklega sterkt.

Samkvæmt American Heart Association eru aukaslög algeng og margir finna lítið eða ekkert fyrir þeim. Aðrir finna greinilega fyrir taktbreytingunum og geta einnig upplifað mæði eða óþægilegan hjartslátt.

Hættulaus þýðir ekki að þau séu léttvæg

Stök gáttaaukaslög eru yfirleitt hættulaus. Það er þó ekki það sama og að þau séu alltaf einkennalaus eða að engu máli skipti hversu mörg þau eru.

Þegar aukaslög eru mjög tíð, valda óþægindum eða koma fram hjá einstaklingi með undirliggjandi hjartasjúkdóm þarf að skoða heildarmyndina. Það er því mikilvægt að þau séu ekki afgreidd með orðunum: „Þetta eru bara aukaslög.“

Rannsókn sem birtist í Heart Rhythm O2 árið 2021 sýndi að fólk með mikið af supraventricular aukaslögum var líklegra til að greinast síðar með gáttatif. Það þýðir ekki að aukaslög séu gáttatif eða að allir með þau fái gáttatif. Niðurstöðurnar styðja hins vegar mikilvægi eftirfylgdar þegar þau eru tíð.

Hjá mér fannst ekkert gáttatif þessa tvo sólarhringa. Það er mikilvæg niðurstaða þótt hún útiloki ekki að annars konar hjartsláttaróregla geti komið fram á öðrum tíma.

Þegar orkan er takmörkuð auðlind

Það sem hefur reynst mér erfiðast er ekki aðeins hjartsláttarónotin sjálf. Það er þreytan, orkuleysið og tilfinningin að ná sér ekki almennilega eftir nóttina.

Ég hef lifað með hjartabilun í meira en tvo áratugi og þekki vel að þurfa að fara skynsamlega með orkuna. Stundum gengur dagurinn ágætlega. Aðra daga þarf að velja hvað maður gerir og hvað verður að bíða. Þegar óreglulegur hjartsláttur og órólegar nætur bætast við getur svigrúmið orðið enn minna.

- Auglýsing-

Hjartsláttartruflununum getur fylgt þreyta, máttleysi og mæði, svefnin er ekki endurnærandi og maður vaknar þreyttur. Hjartabilun getur valdið sömu einkennum og Það er því ekki hægt að fullyrða að aukaslögin skýri allt orkuleysið hjá mér þó það sé líklegt að hægt sé að skrifa mikið af því á aukaslögin á þessu tímabili. Svefn, blóðþrýstingur, lyf og staða hjartabilunarinnar skipta líka máli og allt hefur þetta áhrif.

Fyrir mig fara þessi óþægindi saman við minni þrótt og lakari líðan. Það þarf að taka þá upplifun alvarlega jafnvel þótt niðurstaða rannsóknar sýni ekki hættulega hjartsláttartruflun.

Af hverju finn ég mest fyrir þessu í rúminu?

Þegar dagsins önn lýkur verður maður meira var við það sem er að gerast í líkamanum. Í kyrrðinni er auðveldara að taka eftir hjartslættinum en þegar hugurinn er upptekinn við annað.

Það að ég finni mest fyrir aukaslögunum eftir að ég leggst niður þýðir því ekki endilega að þau komi eingöngu á kvöldin. Holtermælingin hjálpar til við að greina hvað er að gerast yfir sólarhringinn óháð því hvenær ég finn mest fyrir því.

- Auglýsing -

Meðferðin þarf líka að bæta líðan

Meðferð við aukaslögum ræðst meðal annars af tíðni þeirra, einkennum og undirliggjandi hjartasjúkdómi. Stundum nægja breytingar á venjum, en við þrálát einkenni geta læknar meðal annars notað betablokka.

Hjá mér var metoprolol aukið og hjartslátturinn varð almennt rólegri og hjartsláttaróreglan á kvöldin lagaðist. Orkan hefur þó ekki tekið sama viðsnúning. Það er atriði sem er þolinmæðisverk enda geta betablokkar sjálfir valdið þreytu hjá sumum.

Viðvarandi versnun á mæði, úthaldi eða bjúg hjá hjartabiluðum á ekki að skrifa sjálfkrafa á aukaslög. Slíkar breytingar þarf að meta. Nýir brjóstverkir, yfirlið eða mikil skyndileg mæði kalla á nánari skoðun.

Það skal taka einkennin alvarlega

Ég er feginn að vita betur hvað hefur verið að gerast. En mig langar líka að sofa betur, hafa meiri þrótt og geta sinnt því sem mér þykir skemmtilegt.

Aukaslög eru yfirleitt saklaus en geta samt verið mjög hvimleið og dregið úr manni þróttinn. Fyrir þann sem lifir með hjartabilun geta þau bæst við einkenni sem þegar setja takmarkanir á daglegt líf.

Þess vegna skiptir bæði máli hvað rannsóknin sýnir og hvernig manni líður. Markmiðið hlýtur að vera að skilja hvort tveggja og finna leiðir til að bæta líðanina.

Þessa dagana er ég að jafna mig á þessu og reyna að hvílast til að geta náð orkunni upp.

Björn Ófeigs.

Heimildir

  1. American Heart Association: Premature Contractions – PACs and PVCs
  2. Cleveland Clinic: Premature Atrial Contractions
  3. American Heart Association: Symptoms, Diagnosis and Monitoring of Arrhythmia
  4. American Heart Association: Heart Failure Signs and Symptoms
  5. Larsen o.fl., Heart Rhythm O2, 2021: Supraventricular aukaslög og áhætta á gáttatifi
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.
-Auglýsing-

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-