-Auglýsing-

Fékk hjartaáfall í skólasundi

SjúkraflugÞeir skipta hundruðum sem hafa fengið bráðan hjartasjúkdóm en lifa í dag góðu lífi vegna þess að það gekk hratt og örugglega að koma þeim með sjúkraflugi til Reykjavíkur í gegnum lífæðina í Vatnsmýri og þaðan á Landspítalann.

Oft á tíðum er þessu fólki veitt endurlífgun nánast allan tíman meðan á flugi stendur. Á Landspítalanum taka færustu sérfræðingar okkar í málefnum hjartans á móti þeim, veita meðferð eða framkvæma lífsbjargandi bráðaðgerðir.

-Auglýsing-

Frásagnir af slíku fólki eru margar og áhrifamiklar, Ein sú minnisstæðasta og áhrifamesta í seinni tíð er sagan af 12 ára stúlkunni sem fékk hjartaáfall í sundi. Þar sem óhætt er að fullyrða að þeir sem að fluginu komu hafi sýnt ótrúlega þrautsegju, en störf þeirra eru oft unnin við mjög erfiðar aðstæður.

- Auglýsing-

Helga Sigríður Sigurðardóttir var aðeins tólf ára er hún fékk alvarlegt hjartaáfall í skólasundi á Akureyri, einn nóvemberdag 2010. Það var fyrir snarræði og fagmennsku sem tókst að halda Helgu á lífi, en strax varð ljóst að flytja þyrfti hana til frekari aðhlynningar á LHS í Reykjavík sem fyrst.

Kölluð var til sjúkraflugvél í flýti, en meðan á fluginu stóð varð að beita endurlífgun hvað eftir annað og eru læknar og bráðaliðar þeir er önnuðust Helgu á leiðinni taldir hafa unnið afrek með björgun hennar.

Koma Helgu á bráðadeild syðra var á elleftu stundu. Ljóst er að nánd Reykjavíkurflugvallar við spítalann þar skipti sköpum þennan dag. Leið Helgu lá skömmu síðar til Svíþjóðar þar sem talið var um tíma að hún þyrfti á nýju hjarta að halda, sem þó reyndist ekki raunin.

- Auglýsing -

Í flutningnum til Svíþjóðar reyndi öðru sinni á nánd flugvallarins við LHS, þegar afar fullkomin og sérútbúin sjúkraþota lenti í Reykjavík til að sækja Helgu, en sérstakan búnað þurfti um borð til að halda líðan hennar stöðugri í því flugi. Helga Sigríður er lífsglöð stúlka og hefur náð ótrúlegum bata eftir þessa lífsreynslu.

Óhætt er að fullyrða að Helga er á lífi vegna nálægðar flugvallarins við Landsspítalann, lífæðinni í Vatnsmýri þar sem hjartað slær.

Tengt efni:

Tólf ára stúlka þarf nýtt hjarta

Allt lítur vel út með líffæri Helgu

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.
-Auglýsing-

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-