-Auglýsing-

Ein árangursríkasta meðferðin við svefnleysi

Andvökunætur geta verið mörgum erfiðar auk þess að geta valdið heilsufarslegu tjóni.

Sé tekið mið af notkun íslendinga á svefnlyfjum má telja líklegt að þúsundir þjáist af svefnleysi hér á landi á hverjum tíma. Hvort sem um er að kenna streitu eða vitlaust stilltri klukku miðað við hnattstöðu skal ósagt látið. En hver er árangursríkasta leiðin til að ráða bót á svefnleysinu til langs tíma?

Hugræn atferlismeðferð hefur verið notuð víða með mjög góðum árangri en slík meðferð er víða í boði á sálfræðistofum landsins. Rannsóknir síðasta einn til tvo áratugina hafa skilað gríðarlegum framförum í meðferð við svefnleysi og er óhætt að segja að um tímamót sé að ræða varðandi meðferð við þessu algenga heilsuvandamáli.

Niðurstöður rannsókna á árangri hugrænnar atferlismeðferðar við svefnleysi hafa margítrekað sýnt að meðferðin er árangursríkasta meðferðin við langvarandi svefnleysi. Sem dæmi sýndu niðurstöður þriggja stórra rannsókna sem hafa birst í Journal of the American Medical Association og Archives of Internal Medicine að hugræn atferlismeðferð var árangursríkari en svefnlyf.

Að meðaltali bætir hugræn atferlismeðferð svefn hjá um 80% af þeim sem ganga í gegnum slíka meðferð og um helmingur þeirra sem nota svefnlyf nær að hætta að taka lyfin.

Mikill kostur hugrænnar atferlismeðferðar við svefnleysi er sá að meðferðin hefur engar aukaverkanir og fólk lærir aðferðir sem nýtast til að viðhalda betri svefni til framtíðar. Meðferðin tekur að öllu jöfnu skamman tíma, eða 5 til 8 vikur.

Ólíkt hugrænni atferlismeðferð valda svefnlyf lítilli eða miðlungs bætingu á svefni og oft fylgja svefnlyfjatöku óþægilegar aukaverkanir, sérstaklega hjá fólki sem er 60 ára eða eldra. Meðal aukaverkana eru minnisleysi, róandi áhrif að degi til og lyfjafíkn. Auk þess er vert að taka skýrt fram að langtímanotkun á svefnlyfjum er að öllum líkindum gagnslaus og getur verið hættuleg.

- Auglýsing-

Niðurstöður rannsókna benda til að aukinnar dánartíðni þegar um reglulega langtímanotkun svefnlyfja er að ræða. Samkvæmt þessu er full ástæða fyrir landsmenn að íhuga aðra kosti við svefnleysi en lyfjameðferð.

Til gamans má geta þess að sjálfur notaði ég þessa aðferð við að ná tökum á svefninum mínum. Ég hafði notað svefnlyf í 10 ár og var alltaf í vandræðum sama hvað ég reyndi. Þegar mér var boðið að fara á svefnnámskeið þar sem þessar aðferðir voru notaðar var það ekki endilega markmið hjá mér að hætta að nota svefnlyf. Það er skemmst frá því að segja að ég hef ekki notað svefnlyf síðan og hef góða stjórn á svefninum þó svo að alltaf komi ein og ein andvökunótt. Ég veit að það er allt í lagi og það er ekkert að óttast.

Ekki gleyma að læka við okkur á Facebook

Björn Ófeigs.

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-