Hér eru mikilvæg en um leið einföld skilaboð um heilaáföll sem geta bjargað mannslífum. Heilablóðfall er afleiðing skyndilegrar truflunar á blóðflæði til heilans af völdum blóðtappa eða þess að æð brestur.
Bandarísku heilablóðfallssamtökin National STROKE Association segja að allir geti lært að bera kennsl á heilablæðingu með því að beita þremur einföldum ráðum:
1. Biðja manneskjuna að BROSA.
Fylgir hluti andlitsins ekki með í brosinu?
2. Biðja manneskjuna að LYFTA BÁÐUM HANDLEGGJUM
Leitar annar handleggurinn niður á við?
3. Biðja manneskjuna að SEGJA EINA EINFALDA SETNINGU (sem er í samhengi, t.d. …Sólin skín í dag).
Drafar einstaklingurinn eða er óskýr?
Ef viðkomandi á í erfiðleikum með eitthvert þessara atriða eins og áður er lýst – hringið þá strax í neyðarnúmerið 112, lýsið einkennunum og fylgist vel með einstaklingnum.
Haft er eftir sérfræðingum að ef sem flestir sem sjá þennann póst og leggja efni hans á minnið getur viðkomandi reiknað með því að mannslífi eða mannslífum verði bjargað.
LÁTTU EKKI ÞITT EFTIR LIGGJA – DEILDU ÞESSU MEÐ EINS MÖRGUM OG ÞÚ GETUR
Hér er hægt að finna frekari upplýsingar um einkenni heilablóðfalls
Munið eftir að læka við okkur á Facebook