-Auglýsing-

Tækjaskortur helsti veikleiki Landspítala

„Tækjamálin eru í dag helsti veikleiki Landspítalans. Árum saman hefur smámunum verið ætlað til tækjakaupa og endurnýjunar miðað við umfang starfseminnar. Ég tel að innan spítalans sé samstaða um þetta sjónarmið,” segir Guðmundur Þorgeirsson, prófessor í lyflækningum við Háskóla Íslands og fyrrverandi yfirlæknir á hjartadeild LSH.

„Þetta er búið að vera vandamál lengi og verður að viðurkennast að komið hafa tímar þar sem við höfum verið með öndina í hálsinum yfir því hvort gamalt tæki endist þangað til það tekst að krafla saman peningum í endurnýjun,” segir Guðmundur jafnframt.

-Auglýsing-

Á fjárlögum ársins 2010 eru 237 milljónir, auk framlaga til viðhalds og nýframkvæmda, veittar til tækjakaupa en þyrfti að vera milljarður á ári til eðlilegrar endurnýjunar. Um sömu krónutölu er að ræða og undanfarin ár. Öll tæki eru keypt erlendis og því hefur gengisþróun séð til þess að upphæðin hrekkur varla til kaupa á bráðanauðsynjum. Framlög til tækjakaupa og endurnýjunar hjá sambærilegum háskólasjúkrahúsum við LSH á Norðurlöndunum eru þrjú til fjögur prósent af veltu. Það jafngildir 1,2 til 1,6 milljörðum króna í rekstri LSH.

Gísli Georgsson, deildarstjóri á heilbrigðis-og upplýsingatæknideild LSH, hélt nýlega erindi þar sem kom fram að tækjaeign LSH er um tíu milljarðar að núvirði. Ríflega 600 milljónir þarf árlega til að halda meðalaldri tækja í horfinu, sem er sjö til átta ár. Aðrar 300 milljónir þarf vegna nýrrar tækni, til dæmis kaupa á hugbúnaði. Í erindi hans kom fram að 6,5 milljörðum hefur verið varið til kaupa á lækningatækjum á síðustu þrem áratugum, eða rúmlega 200 milljónum að jafnaði á ári.

- Auglýsing-

Guðmundur segir að gjafafé hafi bjargað miklu á undanförnum árum. Jónínusjóðurinn hafi til dæmis gegnt meginhlutverki við að endurnýja hjartaþræðingartæki spítalans en Jónína Gísladóttir sem nú er látin gaf stofnféð í þann sjóð. „Sambærileg dæmi eru mýmörg og ef ekki kæmu til framlög þessara sjóða, þá veit ég ekki hvar við stæðum,” segir Guðmundur.

Hann segir að mannafli, skipulag þjónustu, rannsóknir, kennsla og jafnvel húsakosturinn, sem sé dreifður og óhagkvæmur, geri LSH að þeirri öflugu stofnun sem menn þekki. Það sé því úr takti að kaup og endurnýjun á tækjakosti spítalans sé háð þeim annmörkum sem raun ber vitni.

svavar@frettabladid.is

www.visir.is 07.05.2010 

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-