Hjartavernd hefur fengið 125 milljóna króna rannsóknastyrki frá Bandarísku heilbrigðisstofnuninni (NIH) til rannsókna á sambandi æðakerfis og heila- og nýrnastarfsemi sem og til rannsókna á notkun beinamynda sem munu spá fyrir um líkur á beinbrotum.
Rannsóknin á æðakerfinu er gerð í samvinnu við vísindamenn í Cambridge í Bandaríkjunum og samkvæmt upplýsingum Hjartaverndar er vonast til að hún geti varpað ljósi á þá þætti æðabreytinga og blóðflæðisstjórnunar á hrörnun og vefjabreytingum í heila og nýrum sem gjarnan sjást með auknum aldri og hugsanlega verður hægt að hafa áhrif á.
„Hjartavernd hefur á síðustu árum skipað sér sess meðal fremstu rannsóknarstofnana í heiminum á sviði notkunar á myndgreiningu í faraldsfræði.
Rannsóknin á þætti beingerðar sem greind verður með tölvusneiðmyndum er samvinnuverkefni vísindamanna Hjartaverndar og Berkeley háskóla í Bandaríkjunum. Veruleg fjölgun aldraðra á komandi áratugum veldur því að beingisnun og beinbrot meðal aldraðra er ein af mest ógnandi heilbrigðisvandamálum heimsins. Aukinn skilningur á þeim þáttum sem ákvarða áhættu hvers einstaklings á því að brotna á mjöðm eða hrygg og þróun aðferða til að fyrirbyggja slík áföll er því afar mikilvæg. Þessi rannsókn er líkleg til þess að geta varpað enn frekar ljósi á áhættuþætti beinbrota og mun því geta hjálpað okkur í forvörnum gegn beinbrotum.
Þessir rannsóknastyrkir eru mikil viðurkenning á því mikla vísindastarfi sem Rannsóknarstöð Hjartaverndar framkvæmir með góðum og dyggum stuðningi þátttakanda,“ segir í fréttatilkynningu frá Hjartavernd.
www.mbl.is 10.01.2009