Í byrjun sumars var göngudeild fyrir kransæðasjúklinga lokað á Landspítalanum, en með því sparaðist launakostnaður vegna rúmlega eins stöðugildis hjúkrunarfræðings. „Góðu heilli verður þessi þjónusta áfram í boði, nú í einkarekstri,“ segir Elsa Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Hún gagnrýnir þau ummæli forsætisráðherra að stærsti sigur ríkisstjórnarinnar sé vörn velferðarkerfis.
-Auglýsing-
„Þetta er mögnuð yfirlýsing, sérstaklega í ljósi þeirra nýju atburða að heil göngudeild var lögð niður til að spara eitt stöðugildi,“ segir Elsa.
-Auglýsing-