-Auglýsing-

Von fyrir brostin hjörtu

Von fyri brostin hjörtuMikilvægt skref hefur verið stigið í að lagfæra brostin hjörtu sem hafa hlotið skaða eftir hjartaáfall. Aðferðinn gæti hjálpað milljónum hjartabilaðra um allan heim, en frá þessu var sagt í Ríkissjónvarpinu í gærkvöldi.

Kanadískum læknum hefur í fyrsta sinn í sögunni tekist að lagfæra vefjaskemmdir í mannshjarta með því að beita samtímis stofnfrumu- og genameðferð. Vonir standa til að aðferðin geti nýst milljónum hjartasjúklinga um allan heim.

-Auglýsing-

Konan sem gekkst undir aðgerðina á sjúkrahúsi í Ottawa, höfuðborg Kanada, fékk hjartaáfall í júlí síðastliðnum. Hjartsláttur hennar stöðvaðist um tíma og áður en endurlífgun bar árangur höfðu miklar skemmdir orðið á vefjum í hjarta. Læknarnir einangruðu stofnfrumur úr blóði konunnar og til að auka virkni þeirra bættu þeir í þær erfðavísi, sem er nýbreytni.

Ættingjar konunnar sem hafa fylgst grannt með meðferðinni segja árangurinn framar vonum.

- Auglýsing-

Áður en meðferðin hlýtur almenna viðurkenningu er frekari rannsókna þörf en þetta mikilvæga skref gefur góð fyrirheit um framhaldið.

Hægt er að sjá frétt RÚV um málið hér

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-