-Auglýsing-

Svartur lakkrís getur valdið hjartsláttartruflunum

Það eru margir sem elska lakkrís og mörg páskaegg innhalda lakkrís en það er öruggara að fara varlega í neyslunni.

Páskaegg hafa víða verið á borðum síðustu daga og í mörgum þeirra er lakkrís. Mörgum finnst lakkrís góður en hann á sér svo sannarlega dekkri eða jafnvel svarta hlið. Það er ljóst að ef þú borðar of mikið af honum kemur hjarta þitt raunverulega til með að taka kipp, sleppa úr slagi eða tveim, já eða jafnvel mörgum.

Þó það gerist sjaldan getur svartur lakkrís valdið óreglulegum hjartslætti hjá sumum, segir matvæla-og lyfjaeftirlitið (FDA) í Bandaríkjunum og umfram allt, þetta getur jafnvel valdið alvarlegum skaða.

Vandræðaefnið í svörtum lakkrís

„Svartur lakkrís inniheldur efnasamband sem kemur frá lakkrísrótinni og getur það valdið því að þéttni kalíums getur lækkað. Lægri kalíumgildi geta síðan valdið óeðlilegum hjartsláttartruflunum,“ segir næringarfræðingurinn Kate Patton frá forvarnarsviði hjarta og æðasjúkdóma hjá Cleveland Clinic í Ohio.

Sérfræðingarnir frá FDA segja að svartur lakkrís innihaldi samsett glycyrrhizin, sem er sætuefnasamband sem fengið er úr lakkrísrótinni. Efnasambandið getur valdið því að kalíum í líkamanum minnkar og Þegar þetta gerist upplifa sumir óeðlilegan hjartslátt.

Lækkun á kalíum getur verið hættuleg

Aðrir, einkum þeir sem eru yfir 40 og hafa sögu um hjartasjúkdóma og eða háan blóðþrýsting geta lent í því að upplifa önnur og hugsanlega alvarlegri vandamál meðal annars hækkun á blóðþrýstingi, svefnhöfgi og í verstu tilfellum jafnvel hjartabilun.

„Ef þú ert nú þegar með hjartasjúkdóm eða háan blóðþrýsting, þá er gott að vera meðvitaður um hvernig tilfinningin er ef þú borðar svartan lakkrís,“ segir Patton. „Hættu að borða hann ef þér finnst, eða tekur eftir að hjartslátturinn verði óreglulegur.“ Patton bætir hins vegar við að matvæli sem auglýsa sig sem „lakkrís“ eða með „lakkrís bragði“ og nota anís olíu en innihalda ekki svartan lakkrís, þau matvæli munu ekki auka líkur þínar á hjartsláttartruflunum.

- Auglýsing-

Hversu mikið er of mikið ?

Svo hversu mikið er of mikið? FDA segir að þeir sem borða 56,7 grömm af svörtum lakkrís á dag í að minnsta kosti tvær vikur séu að borða of mikið.

Undirritaður gerði óvísindalega könnun á því hvað þetta væri mikið magn til að setja þetta í Íslenskt samhengi og þetta eru um 20 bitar af lakkrís á dag.

Ein lakkrísrúlla er um 29 grömm og lakkrísreimar fást í 110 og 200 gramma pakkningum.

Ég veit hinsvegar ekki hvort margir hefðu lyst á því að borða þetta mikið magn í tvær vikur samfleytt.

Að lokum

Patton segir fyrirbærið sjaldgæft, en ef þú færð hjartsláttarónot eftir að borða svartan lakkrís og ef þú ert með þekkt hjartavandamál í fortíðinni, ekki hika við að hringja í lækni.

„Ef þú hefur einhverjar áhyggjur væri rétt að leita ráða á læknavakt eða heilsugæslu. Ef þetta er virkilega alvarlegar truflanir á hjartslætti þá myndi ég mæla með því að leita á bráðamóttöku því það er betra að vera öruggur.“

Góðu fréttirnar eru þær að ef þú skyldir borða of mikið af lakkrís og byrja að verða veikur, segir Patton að kalíumgildi jafni sig yfirleitt aftur án varanlegra vandamála fyrir heilsuna.

Enn og aftur erum við minnt á að allt er best í hófi.

- Auglýsing -

Þýtt og staðfært af undirrituðum.

Björn Ófeigs.

Meginheimild: Af vef Cleveland Clinic

Munið eftir að læka við okkur á Facebook
 

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-