-Auglýsing-

Naglinn: Við erum ekki öll eins

Flækja í eldhúsinuRagga Nagli bloggar og er með vinsæla síðu á Fésbókinni. Hún bloggar um mat, mataræði, þjálfun, birtir uppskriftir og í stuttu máli má segja að ekkert sé henni óviðkomandi þegar málið snýst um heilsu, hreyfingu og allt þar á milli. Auk þess er hún með mastersgráðu í heilsusálfræði og próf í klínískri sálfræði.

Ragga liggur ekki á skoðunum sínum og setur þær í skemmtilegan búning. Við fengum leyfi hjá henni til að birta þennan skemmtilega pistil frá henni þar sem hún veltir vöngum yfir öllum þessu mataræðis-kúra brjálæði sem dynur á okkur alla daga, en gefum henni orðið.

Naglinn fær oft spurninguna: “Ertu á X mataræðinu, eða Y kúrnum?”  “Hvað finnst þér um…..”

Og svo eru nefndar allskyns skammstafanir, upphrópanir eða útlenskar nafngiftir.

Naglinn borðar ekki samkvæmt fyrirfram ákveðnum fyrirmælum frá sjálfskipuðum gúrúum úti í heimi.

Fornmannafræði, Hollívúddstjörnur, duftframleiðendur eða kjúklingabændur ákvarða ekki snæðinga Naglans.

- Auglýsing-

Naglinn fylgir ekki mataræði sem er áætlað útfrá háralit, blóðflögum eða skóstærð.

Naglinn borðar kolvetni og meira að segja fullt af þeim. Bæði einföld og flókin, tímasett rétt yfir daginn.

Naglinn borðar líka fitu, fullt af fitu… góðri fitu, já og stundum mettaða fitu líka.

Naglinn borðar jafn mikið alla daga vikunnar.

Föstuástand er sá tími sem líður á milli máltíða þar til hungrið lætur vita að nú sé tími á áfyllingu.

Naglinn borðar í samræmi við sín markmið hverju sinni, hvort sem það er vöðvabygging, viðhald eða fitutap.

Naglinn er ekki með risastóra nammidaga þar sem allt “bannað” aðra daga vikunnar er sporðrennt frá sólarupprás til sólarlags.

Engin matvæli eru flokkuð sem afkvæmi Satans, ekkert er á hryðjuverkalista Sameinuðu Þjóðanna, og boð og bönn finnast í munkareglum í Nepal.

- Auglýsing -

Mataræði er ekki ein stærð hentar ekki öllum.

Lærðu á þinn líkama og hvernig hann bregst við.

Mataræði er ekki eingöngu líkamlegt, heldur að stóru leyti sálrænt. Við erum ekki bragðaukalaus vélmenni, heldur manneskjur með þarfir og langanir.

Tileinkaðu þér mataræði sem eflir skrokkinn þinn, bætir þína heilsu, færir þig nær þínum markmiðum og friðar hausinn þinn.

Mataræðið þitt þarf ekki að koma upp í leitarstreng á Google, eða innbundið í skræðu úr Mál og menningu.

Mataræðið ÞITT þarf bara að passa ÞÉR.

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-