-Auglýsing-

Mun fagna ef Hulda verður næsti forstjóri Landspítalans

Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Aker-sjúkrahússins í Noregi, hefur verið nefnd sem líklegur forstjóri Landspítalans. Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segist aðspurð að hún muni fagna hljóti Hulda stöðuna.

Hulda er ein af fjórtán umsækjendum um stöðuna. Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, mun í vikunni tilkynna hver hlýtur stöðuna og tekur viðkomandi við sem forstjóri 1. september.

Elsa segir að það væri fagnaðarefni ef Hulda verður ráðin. ,,Ég myndi fagna því því ég tel að það væri afar vel til fundið að fá vel menntaðan stjórnanda í hjúkrun til að taka að sér þetta verkefni.”

Hulda er menntuð sem hjúkrunarfræðingur og hefur starfað sem forstjóri Aker-sjúkrahússins í Osló frá því í mars 2006.

,,Í hópi umsækjanda eru aðilar sem væru vel til þess farnir að taka þetta verkefni að sér en ég endurtek það að ég yrði afskaplega ánægð ef Hulda fengi forstjórastöðuna,” segir Elsa.

www.visir.is 26.08.2008

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-