-Auglýsing-

Kleift að halda aðgerðum áfram

Ekki verða tafir á sértækum hjartaaðgerðum á Landspítalanum, eins og útlit var fyrir nú í sumarlok. Heilbrigðisráðherra ákvað að veita viðbótarfjármagni til þeirra, þannig að unnt verður að halda þeim áfram í haust.

Um svokallaðar brennsluaðgerðir er að ræða, sem lækna eiga gáttatif í hjarta. Að sögn Helga Más Arthúrssonar, upplýsingafulltrúa heilbrigðisráðuneytis, eru veittar um fjórar milljónir af sérstökum lið í aðgerðirnar. Fyrir þetta fé átti að þjóna tilteknum fjölda sjúklinga. Landspítalinn tvöfaldaði fjölda þeirra sem þjónustunnar nutu með þessari fjárveitingu.

Þegar ljóst varð að eftirspurn eftir að gera enn fleiri aðgerðir kom fram gerði stjórn Landspítala ráðuneytinu grein fyrir málinu.

Heilbrigðisráðherra ákvað þá að veita átta milljónum til viðbótar í þessar aðgerðir, þar sem helmingi kostnaðarsamara er að gera þær í útlöndum og kostnaður félli þá á Tryggingastofnun. Landspítala var tilkynnt þetta þremur dögum eftir að ráðuneytið fékk málið inn á borð til sín. “LSH hefur þegar gert stjórnendum á viðkomandi sviði grein fyrir ákvörðuninni og beðið um að fleiri aðgerðir verði undirbúnar,” segir Helgi Már.

– jss

Fréttablaðið 29.09.2008

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-