-Auglýsing-

Kjúklingabringur fylltar með Maís

Kjúklingabringur fylltar með maisMatreiðslumeistarinn Úlfar Finnbjörnsson er hér með frábæra uppskrift í boði Holta kjúklings af kjúklingabringum fylltum með maís.

  • 3/4 dl kúskús
  • 3/4 dl sjóðandi vatn
  • 1 tsk. kjúklingakraftur
  • 200 g maísbaunir, frosnar og látnar þiðna
  • 1,5 dl rjómi eða mjólk
  • 20 g smjör
  • 1,5 msk. estragon smátt saxað eða 3/4 msk. þurrkað
  • Salt og nýmalaður pipar
  • 1 msk. Montreal Chicken frá McCormik
  • 4 kjúklingabringur
  • 2 msk. olía

Aðferð

Setjið kjúklingakraftinn í sjóðandi vatnið og hellið yfir kúskúsið. Látið álpappír yfir og geymið í 5 mín. Færið maísinn í pott ásamt smjöri og rjóma og sjóðið í 2-3 mín. Maukið með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Blandið helmingi maísmauksins vel saman við kúskúsið ásamt estragoni, salti og pipar og látið í sprautupoka. Skerið vasa á kjúklingabringurnar og sprautið maísfyllingunni inn í þær. Kryddið með Montreal Chicken-kryddinu.

Steikið kjúklingabringurnar í olíu á heitri pönnu í 1-2 mín. á hvorri hlið eða þar til þær eru orðnar gullinbrúnar. Setjið bringurnar í ofnskúffu og bakið við 180°C í 12-18 mín.

Merjið restina af maísmaukinu í gegnum sigti og berið fram með bringunum, maískorni, steiktum dvergmaís, poppkorni og kartöflum.

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-