-Auglýsing-

Hvað má borða mörg egg á dag?

Lengi vel hefur verið mælt með því að dagleg neysla kólesteróls fari ekki yfir 200 – 300 milligrömm. Eitt egg inniheldur sennilega um 180 – 200 milligrömm af kólesteróli.

Þetta kólesteról er aðallega í eggjarauðunni. Það er því ljóst að þú getur ekki borðað mikið af eggjum ef þú ætlar að halda þig við ofangreindar ráðleggingar.

Á undanförnum árum hefur hins vegar komið í ljós að kólesteról í fæðu hefur mun minni áhrif á kólesterólið í blóðinu en talið var. Mjög lítið af því kólesteróli sem þú borðar fer út í blóðrásina þína. Lifrin okkar framleiðir kólesteról. Sumir fræðimenn hafa sagt að ef við borðum mikið af kólesteróli framleiði lifrin hreinlega minna af því og ef við borðum lítið kólesteról framleiði lifrin hreinlega meira. Það skipti því hreinlega engu máli hvað við borðum mikið af kólesteróli. Þótt þessi kenning sé kannski ekki fyllilega sönnuð er margt sem bendir til þess að þú þurfir ekki að hafa áhyggjur af því að hófleg neysla á eggjum hafi slæm áhrif á blóðfiturnar þínar. Ekki hefur verið sýnt fram á að neysla á eggjum auki líkur á hjarta-og æðasjúkdómum.

Svo virðist sem neysla á mettaðri fitu sé mun líklegri til að hafa óæskileg áhrif á blóðfituna en neysla á kólesteróli. Egg innihalda tiltölulega lítið af mettaðri fitu en talsvert af einómettuðum og fjölómettuðum fitusýrum sem taldar eru hollar. Það skiptir hins vegar verulegu máli upp á hollustuna hvernig þú matreiðir eggin og með hverju þú borðar þau. Einfaldast og best er að sjóða eggin, engin ástæða er til að steikja þau í feiti. Láttu beikonið eiga sig, a.m.k. ef þú vilt reyna að forðast mettaða fitu eða ef þú ert að reyna að bæta blóðfituna.

Egg eru mjög næringarrrík. Þau innihalda mikið af prótínum, hollum fitusýrum og vítamínum. Þau eru t.d. rík af D-vítamíni. Engin kolvetni eru í eggjum. Þau innihalda talsvert magn af choline sem er mikilvægt næringarefni. Nýlegar rannsóknir benda til að skortur á choline sé fremur algengur. Choline er talið draga úr bólgum. Eitt egg inniheldur 25% af deglegri þörf okkar fyrir choline.

- Auglýsing-

Egg eru tiltölulega mettandi. Egg geta hjálpað þér að léttast, m.a. vegna þess að ólíklegra er að þú neytir óhollra kolvetna ef þú hefur borðað egg, t.d. í morgunmat.

Niðurstaðan er sú að egg eru holl og næringarrík fæða. Þau eru mettandi og góður orkugjafi. Þú átt með góðri samvisku að geta borðað eitt egg á dag.

Eins og áður sagði kemur pistillinn úr smiðju Axels F. Sigurðssonar hjartalæknis á Hjartamiðstöðinni en hann heldur líka úti vefsíðunni docsopinion.com

Munið eftir að læka við okkur á Facebook

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Axel F. Sigurðsson
Axel F. Sigurðsson
Axel er sérfræðingur í lyflækningum og hjartalækningum. Embættspróf frá Læknadeild Háskóla Íslands 1984. Sérfræðinám við Sahlgrenska/Östra háskólasjúkrahúsið í Gautaborg 1988-1995 og við Royal Jubilee Hospital í Victoria BC í Kanada 1995-1996. Doktorspróf frá Gautaborgarháskóla 1993. Sérfræðingur í hjartalækningum við Landspítala Háskólasjúkrahús frá 1996 með megináherslu á kransæðasjúkdóma, kransæðaþræðingar, kransæðavikkanir og hjartabilun. Axel hefur starfað sem hjartalæknir á Hjartamiðstöðinni Holtasmára 1. frá 2008.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-